Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 32
30
Árbók Háskóla íslands
Útgjöld og tekjur í þús. kr.
Gjöld: 1980 1981
Laun og launatengd gjöld G.kr. 609.912 N.kr. 9.735
Önnur rekstrargjöld 201.189 3.081
Viðhald 57.870 110
Gjaldfærður stofnkostnaður 41.076 236
Samtals G.kr. 910.047 N.kr. 13.162
Tekjur: Rannsóknir o.fl G.kr. 495.242 N.kr. 8.299
Framlag ríkissjóðs 412.500 7.497
Samtals: 907.742 15.796
Gjöld umfram tekjur 2.305 -2.634
Samtals G.kr. 910.047 N.kr. 13.162
Helstu verkefni
1. Líffœrameinafrœðideild
1.1. Þjónusta.
1.1.1. Vefjasýni og heil líffæri, tekin með
skurðaðgerðum, berast frá öllum sjúkrahús-
um landsins og sjálfstætt starfandi læknum.
Á grundvelli vefjagreininga eru gerðar
frekari aðgerðir á viðkomandi sjúklingum,
ýmist skurðaðgerðir eða lyfjameðferð. Öll
greining krabbameina er gerð með vefja-
greiningu.
Fjöldi vefjasýna 1980: 15.391.
Fjöldi vefjasýna 1981: 16.611.
1.1.2. Krufningar eru gerðar fyrir ríkis-
spítalana, Borgarspítalann og önnur sjúkra-
hús í nágrenni Reykjavíkur. Sérfræðingar
stofnunarinnar annast krufningar á Landa-
kotsspítala. Hlutverk krufninga er margvís-
legt, en aðallega greining dánarmeina,
könnun á áhrifum læknismeðferðar, bæði
skurðlækninga og lyflækninga, auk al-
mennrar athugunar á heilsufari fólks,
kennslu og vísindalegra rannsókna. Und-
anfarin ár hafa 30—40 af hundraði þeirra,
sem deyja í landinu, verið krufnir, og hafa
flestir verið krufnir á vegum Rannsókna-
stofu háskólans. Þessi hundraðstala krufn-
inga mun vera hærri en þekkist hjá einni
þjóð víðast hvar í heiminum.
Fjöldi krufninga árið 1980: 512.
Fjöldi krufninga árið 1981: 604.
1.1.3. Litningarannsóknir voru framan af
nær eingöngu gerðar á blóðsýnum frá
börnum og fullorðnum með erfðagalla,
andlega eða líkamlega. Nýlega hafa hafist
legvatnsrannsóknir til þess að kanna ástand
fósturs með tilliti til arfgengra sjúkdóma og
vanskapnaðar. Legvatnsrannsóknir eru nú
meirihluti verkefnanna á þessu sviði.
1.1.4. Rannsóknir í frumulíffræði hófust
árið 1981. Síðan í maí 1981 hafa verið mæld
í öllum brjóstakrabbameinum kvenna
ákveðin eggjahvítuefni (í umfrymi krabba-
meinsfruma), svokölluð viðtaka-eggjahvítu-
efni fyrir hormónin oestrogen og progester-
one. Eftir magni þessara hormón-viðtaka
fer það oft. hvaða tegund meðferðar er beitt
gegn æxlunum.
1.1.5. Samstarf við sjúkradeildir spítal-
anna og aðrar stofnanir er talsvert, einkum
við deildir Landspítalans. Mánaðarlega
eru haldnir fundir með læknum hlutaðeig-
andi deilda og þar rætt um þá, sem látist