Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 34
32
Árbók Háskóla íslands
frumum; gerfrumur hafa verið notaðar hér
á þessari deild.
2. Réttarlœknisfrœðideild
2.1. Þjónusta.
2.1.1. Krufningar.
Samkvæmt lögum eru réttarkrufningar á
tslandi gerðar á Rannsóknastofu háskólans.
Hlutverk réttarkrufninga er aðallega grein-
ing dánarmeins, en auk þess gegna réttar-
krufningar nokkurri sérstöðu meðal krufn-
inga vegna rannsókna á skyndidauða,
læknisfræðilega og réttarfarslega, auk
rannsókna á voveiflegu andláti almennt. Þá
eru sérstaklega athuguð dauðsföll af völd-
um ýmiss konar eitrana í samvinnu við
Rannsóknastofu háskólans í lyfjafræði og
eiturefnafræði.
Fjöldi réttarkrufninga 1980: 202.
Fjöldi réttarkrufninga 1981: 197.
2.1.2. Blóðflokkarannsóknirog álitsgerðir
til opinberra aðila.
Auk réttarkrufninga og blóðflokkarann-
sókna í barnsfaðernismálum eru á vegum
réttarlæknisfræðideildar framkvæmdar
ýmsar aðrar réttarlæknisfræðilegar rann-
sóknir, svo sem blóðblettarannsóknir og
sæðisblettarannsóknir. Samkvæmt lögum
um læknaráð á prófessorinn í réttarlæknis-
fræði við læknadeild háskólans sæti í ráð-
inu. Hann er formaður réttarmáladeildar
læknaráðs.
2.1.3. Samstarf við aðrar stofnanir.
Réttarlæknisfræðideildin hefur samstarf
einkum við tvær stofnanir, annars vegar
Blóðbankann eins og áður er getið um og
hins vegar Rannsóknastofu háskólans í
lyfjafræði, sem einnig hefur verið minnst á.
Þá annast réttarlæknisfræðideild ýmsar
skýrslugerðir til opinberra aðila, sem óskað
hafa réttarrannsókna eins og áður er skýrt
frá.
2.2. Kennsla.
Yfirlæknir réttarlæknisfræðideildar er
jafnframt prófessor í réttarlæknisfræði við
læknadeild háskólans og annast kennslu í
þeirri grein.
2.3. Vísindalegar rannsóknir.
Vísindaleg rannsóknaverkefni innan rétt-
arlæknisfræðideildar eru þessi:
2.3.1.
Rannsóknir eitrana af völdum ýmissa
efna í samvinnu við Rannsóknastofu há-
skólans í lyfjafræði.
2.3.2.
Undirbúningur efniviðar réttarkrufninga
frá umliðnum árum til að gera hann tölvu-
tækan fyrir úrvinnslu og rannsóknir á ýms-
um réttarlæknisfræðilegum og líffæra-
meinafræðilegum fyrirbærum, sem þar er
að finna.
2.3.3.
Haldið verður áfram samvinnurann-
sóknum við Erfðafræðinefnd háskólans sem
verið hafa á döfinni milli Rannsóknastofu
háskólans í meina- og sýklafræði og Erfða-
fræðinefndar frá því nefndin var stofnuð
árið 1966.
2.3.4.
Haldið verður áfram samvinnurann-
sóknum við krabbameinsskrá Krabba-
meinsfélags íslands sem unnið hefur verið
að um árabil. Einnig þessar rannsóknir hafa
leitt til birtingar nokkurra ritgerða á um-
liðnum árum.
2.3.5.
Hafinn er undirbúningur að rannsóknum
erfðamarka í blóði, frumum og vefjum
varðandi sérstakar tegundir krabbameins.
3. Sýkladeild
3.1. Hlutverk.
Hlutverk sýkladeildar Rannsóknastofu
háskólans er í fyrsta lagi þjónusturannsóknir
til greininga á bakteríu- og sveppasýking-
um. Er þetta gert með smásjárskoðun og
sýklaræktun úr sýnum frá líffærum fólks,
grunaðs um sýkingar, eða mælingum á
mótefnum gegn sýklum í sermi (blóðvatni)
þess. Næmispróf eru gerð á sýklum, þegar
þurfa þykir til að auðvelda læknum val á