Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 38
36
Árbók Háskóla íslands
3.6. Sýklalyfjarannsóknir.
Rannsóknir á pharmacokinetic mezeo-
cillins og azlocillins.
Á árunum 1980—81 fóru fram rannsóknir
á pharmacokinetic þessara lyfja í 10 heil-
brigðum einstaklingum og 6 nýmabiluðum
sjúklingum, sem fara reglubundið í blóðsíun
(gervinýra). Þessar rannsóknir voru gerðar í
samvinnu við dr. Tom Bergan við lyfja-
fræðideild háskólans í Osló, Sigurð B. Þor-
steinsson lækni og Pál Ásmundsson yfir-
lækni, lyfjadeild Landspítalans. Ein grein
um niðurstöður þessara rannsókna hefur
þegar birst og önnur er í prentun.
Jónas Hallgrímsson
Rannsóknastofa í lyfjafræði
Um starfsemi Rannsóknastofu í lyfja- unnar sem birtar hafa verið um almanaks-
fræði vísast í ársskýrslur rannsóknastof- árin 1979-1982.
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði
Kennsla og starfsmenn
Auk nemenda úr læknadeild, tann-
læknadeild, líffræðiskor og félagsvísinda-
deild hafa nemendur Nýja hjúkrunarskól-
ans og Kennaraháskóla íslands notið
kennslu á vegum rannsóknastofunnar.
Kennslubyrði er því þung.
Auk forstöðumanns, dr. Jóhanns Axels-
sonar prófessors, eru eftirtaldir sérfræðingar
fastráðnir við stofnunina: Stefán Jónsson
læknir, dósent, Guðmundur Einarsson,
M.Sc., lektor (frá l.júlí 1980), Logi Jónsson,
cand. real., lektor (frá 1. júlí 1980, hann
starfar einnig við Líffræðistofnun háskól-
ans) og Kristín Einarsdóttir, cand. real., að-
júnkt (frá hausti 1980).
Auk þessa hafa eftirtaldir lífeðlisfræð-
ingar haft kennslu og rannsóknir við stofn-
unina að aðalstarfi, þótt lausráðnir séu:
Bjami Jónsson, B.S., Guðrún Pétursdóttir,
M.Sc., Jón Grétar Óskarsson, B.Sc., og Jón
Ólafur Skarphéðinsson, B.S.
Aðrir sem annast hafa stundakennslu á
vegum rannsóknastofunnar eru: Árni Þórs-
son læknir, Emir Snorrason sálfræðingur,
Guðlaug Torfadóttir líffræðingur, dr.
Helga Ögmundsdóttir læknir, dr. Helgi
Kristbjamarson læknir, Inger R. Jessen líf-
fræðingur, dr. Kristján R. Jessen taugalíf-
fræðingur, dr. Laufey Steingrímsdóttir
næringarfræðingur, dr. M.A. Ali prófessor,
Páll Ammendrup læknir, dr. Sigfús Bjöms-
son dósent, læknarnir Sigmundur Sigfús-
son, Sigurður Bjömsson, Sigurður B. Þor-
steinsson og Tryggvi Ásmundsson og
Þórarinn Sveinsson líffræðingur.
Jóhanna Jóhannesdóttir rannsókna-
tæknifræðingur vinnur að Vi sem aðstoðar-
maður við rannsóknir, auk þess hefur
stofnunin ritara í hálfu starfi.
Rannsóknir á mönnum
í fyrri Árbók (1976—1979) er sagt frá
undirbúningi og aðdraganda samanburðar-
rannsókna á Islendingum og Vestur-íslend-
ingum. Samstarfsaðilar Rannsóknastofu í
lífeðlisfræði um þessar rannsóknir eru
Hjartavemd, Mannfræðistofnun H.Í., vís-
indamenn við Manitobaháskóla og dr.
Anthony B. Way, prófessor við Tech há-
skóla í Texas.
Tvær rannsóknaferðir hafa verið farnar