Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 52
50
Árbók Háskóla íslands
Efnahagsbandalagsins, en 9 frá löndum
utan þess, auk 7 íslenskra þátttakenda frá
Tilraunastöðinni á Keldum og Rannsókna-
stofu háskólans í veirufræði.
Starfsmenn Tilraunastöðvarinnar hafa
tekið reglulega þátt í ráðunautafundum
Búnaðarfélagsins og flutt víða fræðslufyrir-
lestra um sjúkdóma fyrir þá sem áhuga hafa
á slíku efni.
Skipulagsmál
Enn hefur ekki fengist lausn á skipulags-
málum í nágrenni Tilraunastöðvarinnar
sem allir aðilar geta sætt sig við. Vorið 1982
var þó staðfest aðalskipulag sem forsvars-
menn Tilraunastöðvarinnar töldu viðun-
andi með ákveðnum fyrirvörum. Sumarið
1982 hafa komið fram óskir borgaryfirvalda
um landaafsal til íbúðabygginga fram yfir
það sem gert var ráð fyrir í nýstaðfestu
skipulagi. Menntamálaráðherra skipaði
Guðmund Magnússon háskólarektor, Vil-
hjálm Lúðvíksson, framkvæmdastjóra
Rannsóknaráðs ríkisins, og Guðmund Pét-
ursson, forstöðumann á Keldum, í nefnd til
þess að gera áætlun um landrýmisþörf á
Keldum og Keldnaholti vegna framtíðar-
þarfa Tilraunastöðvarinnar, annafra há-
skólastofnana og rannsóknastofnana at-
vinnuveganna. Nefndin hefur skilað áliti, og
haustið 1982 var gert ráð fyrir því að við-
ræðum Reykjavíkurborgar og Mennta-
málaráðuneytisins um þessi mál yrði fram
haldið. Verður vonandi hægt að finna á
þessum málum viðunandi lausn fyrir rann-
sóknastarfsemi í landinu.
Fjárhagur
Otgjöld og tekjur í þús. kr.
Útgjöld: 1980 1981
Laun og launatengd gjöld 2.369 3.406
Rekstrargjöld 1.999 2.751
Stofnkostnaður 92 207
Samtals Tekjur: 4.461 6.364
Sértekjur stofnunar 2.327 3.419
Á fjárlögum 2.133 2.945
Samtals 4.461 6.364
Fjárhagur Tilraunastöðvarinnar hefur
verið heldur bágborinn og farið versnandi
undanfarið. Hún færekki önnurframlög úr
ríkissjóði en sem svarar launum fastráðinna
starfsmanna. Er henni þá ætlað að kosta
allan rekstur, tækjakaup og viðhald af eigin
tekjum. Þær tekjur hafa heldur rýmað síð-
ustu ár, m.a. vegna þess að lokið er styrk
þeim, sem stofnunin hlaut um árabil frá
National Institutes of Health, auk styrkja
frá Norðurlöndum til samnorrænna rann-
sókna á mæðiveiki í sauðfé. Stofnunin hefur
þurft að vinna að nýjum verkefnum án þess
að séð hafi verið fyrir tekjuliðum eða fram-
lagi úr ríkissjóði til að mæta þeim. Þar við
bætist vaxandi tilhneiging þeirra sem fjalla
um fjárlagatillögur Tilraunastöðvarinnar til
þess að reyna að velta launagreiðslum í
vaxandi mæli yfir á rýmandi eigin tekjur.
Þessi fjárhagsvandræði setja mjög svip sinn
á starfsemina síðustu ár, og virðist erfitt að
sannfæra ráðamenn um nauðsyn vísinda-
rannsókna ef kosta þarf til þeirra fé. Þegar
illa árar er borið við fjárskorti, en hættu á
ofþenslu þegar vel árar.
Guðmundur Pétursson