Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 53
Læknadeild og fræðasviö hennar
51
Námsbraut í hjúkrunarfræði
Húsnæðismál
Námsbrautin hefir enn sem fyrr húsnæði
á leigu að Suðurlandsbraut 18. Þær tvær
kennslustofur, er hún hefir þar til umráða,
rúma um 30 nemendur hvor og eru því
orðnar ónógar fyrir þá fjölmennu hópa er
nú innritast árlega. Þar fer þó fram kennsla
nemenda á 4. ári og hópvinna nemenda á
öðrum námsárum. Stjóm námsbrautarinnar
heldur þar fundi sína, svo og Félag hjúkr-
unarfræðinema.
Undanfarin ár hefir námsbrautin haft
kennslustofu í Hjúkrunarskóla Islands og
fengið þar meira húsnæði á síðastliðnum
tveim árum, hefir þar nú tvær sæmilegar
kennslustofur, skrifstofur fyrir kennara,
stofu fyrir ljósritun og kaffistofu. Kennsla
nemenda á 2. og 3. ári fer fram í þessu hús-
næði. Nemendur á 1. ári hafa undanfarið
verið í Lögbergi, Árnagarði eða öðru hús-
næði háskólans. Nýstúdentar eru nú á milli
90 og 100. Ekki þarf að tíunda þá erfiðleika
er fylgja því að hafa kennslu á mörgum
stöðum. Kennarar kvarta einkum undan
sambandsleysi hver við annan og sjá eftir
þeim tíma er fer í að komast á milli staða.
Stjórn
Stjóm námsbrautarinnar er í höndum
námsbrautarstjómar. I henni eiga sæti
námsbrautarstjóri, fastráðnir kennarar
námsbrautarinnar, einn fulltrúi háskóla-
ráðs, kjörinn til tveggja ára í senn, og tveir
fulltrúar læknadeildar, kjömir til sama
tíma. Ennfremur eiga þar sæti þrír fulltrúar
nemenda, kjörnir til eins árs í senn. Stjómin
kýs sjálf formann úr sínum hópi.
Á árunum 1978—1980 var fulltrúi há-
skólaráðs dr. Þórólfur Þórlindsson prófess-
°r, og var hann formaður stjómarinnar það
tímabil. Fulltrúar læknadeildar voru þeir
dr. Gunnar Guðmundsson prófessor og
Hrafnkell Helgason dósent. Árin
1980—1982 var fulltrúi háskólaráðs áfram
dr. Þórólfur Þórlindsson prófessor og full-
trúar læknadeildar dr. Þorkell Jóhannesson
prófessor og Sigurður B. Þorsteinsson
íæknir. Formaður stjórnar þessi ár var Ingi-
björg R. Magnúsdóttir námsbrautarstjóri.
Kennarar
Námsbrautarstjóri hefir starfað við
námsbrautina frá 1. janúar 1976, nú síðari
árin í 37% stöðu. Því starfi hefir gegnt Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Marga Thome var sett dósent í hjúkr-
unarfræði við námsbrautina 1. janúar 1981,
en var áður sett lektor í hjúkrunarfræði 15.
september 1977. Marga er fædd 17. júlí
1942. Hún lauk prófi í hjúkrunarfræði í
Þýskalandi 1963, prófi í ljósmóðurfræðum í
Sviss 1965, prófi í kennslufræðum í Þýska-
landi 1973 og M.S.-prófi í hjúkrunarfræði
við University of Manchester í Englandi
1977.
Marga Thome er erlendur ríkisborgari og
hefir því ekki verið skipuð í stöðu.
Guðrún Marteinsdóttir var skipuð lektor í
hjúkrunarfræði við námsbrautina 1.
september 1981, en hafði áður verið sett
lektor 1. ágúst 1980. Guðrún erriædd 15.
janúar 1952. Hún lauk B.S.-prófi í hjúkr-
unarfræði frá Háskóla íslands 1977, prófi í
uppeldis- og kennslufræðum til kennslu-
réttinda frá Háskóla íslands 1978 og M.S.-
prófi í félagshjúkrun (Community Health
Nursing) frá Boston University í Bandaríkj-
unum árið 1980.
Ingibjörg Sigmundsdóttir var sett lektor
(37% staða) í hjúkrunarfræði við náms-
brautina 1. júní 1982. Hún er fædd 11.