Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 56
54
Árbók Háskóla íslands
stjómunarstörfum, sem eru tímafrek. Er
þess mjög saknað að hafa ekki starfskraft til
að létta þeim þunga af herðum kennaranna,
sem þurfa að sinna mikilli kennslu auk
skipulagningar.
Fjöldi stúdenta
Takmarkaður aðgangur er enn í gildi.
Verkleg kennsla á stofnunum er háð bæði
kennslukrafti og aðstöðu, og breytingar á
þessu hafa orðið litlar. Má næstum segja að
ástandið hafi verið sérlega erfitt s.l. ár, sem
sést á því að nemendur voru sendir í verk-
menntun til Akureyrar, Siglufjarðar, Akra-
ness, Hveragerðis og Keflavíkur. Haustið
1982 voru teknir inn 18 stúdentar af þeim 72
sem sóttu um. Mikið er spurt um niður-
skurðarreglur, sem von er. Það er óhætt að
segja að enginn er öfundsverður af því að
eiga að velja hinn útvalda hóp úr hópi um-
sókna. Um reglur er það að segja að einkum
er stuðst við einkunn á stúdentsprófi, en
einnig er tekið tillit til viðbótamáms á há-
skólastigi, svo og vinnu við heilbrigðis- eða
uppeldismál og fyrri umsókna. Reiknað er
vegið meðaltal þessara þátta, ef fleira en
stúdentspróf kemur til, og fundin út röðun-
artala eftir því.
Námstllhögun
Námið tekur fjögur ár samkvæmt áætlun
og lýkur með B.S.-prófi í sjúkraþjálfun.
Hámarksnámstími er fimm ár.
Engar stórbreytingar hafa orðið á náminu
síðan það hófst. Námsnefnd hefur verið
skipuð, og starfar hún að því að líta á námið
m.t.t. heildarskipulagningarauk breytinga á
einstökum námskeiðum.
Námsgreinar fyrri árin eru að hluta til
sameiginlegar með læknanemum o.fl., til
dæmis í líffærafræði, fósturfræði og eðlis-
fræði. Markmið fyrstu árin er, að stúdentar
læri eðlilega byggingu, þroska og starfsemi
líkamans, líkamsstöðu og hreyfingu. Að-
ferðir í sjúkraþjálfun eru kenndar með
fyrirlestrum og verklegum æfingum, þar
sem nemendur æfa sig hver á öðrum. Sjúk-
dómafræði fjallar um þá mörgu kvilla sem
þjaka manninn og sjúkraþjálfarar þurfa við
að eiga. Hún er kennd af sérfræðingum í
hverri grein á hverju misseri frá og með 2.
ári. Á 3. ári hefst verkleg þjálfun á sjúkra-
stofnunum, þar sem stúdentar eru undir
handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara. Nám-
inu er hagað þannig að 3. og 4. árs nemar
eru til skiptis í klinísku námi, yfirleitt tvo
mánuði í einu.
Tímasókn er allajafna mikil, um og yfir
30 tímar á viku. Námsgreinar eru teknar í
ákveðinni röð, og ljúka verður prófum eins
árs áður en hægt er að hefja það næsta.
Húsnæði
Námsbrautin er til húsa í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar að Lindargötu 7, en H.í.
hefur til leigu hluta af húsinu. Þama er oft
þröng á þingi og vandi að skipuleggja
stundaskrár þannig að ekki verði árekstrar
með salinn eða stofuna. Kennsla fer annars
víðar fram, í öðru húsnæði háskólans,
Landspítala og Borgarspítala. Auk þess fer
klinísk kennsla fram á Reykjalundi, hjá
Sjálfsbjörg, Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra, Kjarvalshúsi, Kópavogshæli og víðar.
Leigusamningur um húsnæðið mun
renna út vorið 1983, og þegar hefur verið
hafist handa við að leita að öðru húsnæði.
Nær víst er að um bráðabirgða-leiguhús-
næði yrði að ræða, en námsbrautin á sér
þann draum að tilheyra læknadeildinni í
raun og fá að njóta húsnæðis með henni
þegar þar að kemur.
Félagslíf
Nemendur hafa með sér félag sem stend-
Ur fyrir fræðslufundum. Nemendur 3. og 4.
árs geta gerst hluta-meðlimir í Félagi ísl.
sjúkraþjálfara og fá þá aðgang að fræðslu
o.fl. sem félagið stendur fyrir.
Maria H. Þorsteinsdóttir