Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 60
58
Árbók Háskóla íslands
Heimspekideild og fræðasvið hennar
Húsnæði
Litlar breytingar urðu á húsnæðismálum
deildarinnar á þeim árum sem hér er fjallað
um. Á vormisseri 1982 kenndu heimspeki-
deildarmenn í einum sex húsum að minnsta
kosti auk þess sem kennarar hafa vinnuher-
bergi enn víðar. 1 Árnagarði er miðstöð
deildarinnar með deildarskrifstofu og
kennslu í tveim fjölmennustu greinunum,
íslensku og sagnfræði. í aðalbyggingu há-
skólans er fjöldi greina kenndur, tungu-
málagreinar og almenn bókmenntafræði.
Miðstöð enskukennslu er í Aragötu 14.
Lögberg notar heimspekideildin talsvert,
þar á meðal undir megnið af heimspeki-
kennslunni. I Norræna húsinu fer fram hluti
kennslu í norrænum málum, og hluti
þýskukennslu í hinu þýska bókasafni
Goethe-stofnunar, sem var í Mávahlíð 23 á
þeim árum sem hér um ræðir. Það kemur
því varla á óvart að deildarmenn bíði eftir
því með talsverðri óþreyju að geta sameinað
sem mest af starfi sínu, því sem nú er unnið
utan Árnagarðs, í hugvísindahúsinu nýja
sem er að rísa við austurhlið hans.
Stjórn og starfslið
Dr. Alan Boucher tók við starfi deildar-
forseta haustið 1979, og var Sveinn Skorri
Höskuldsson varamaður hans. Þegar kjör-
tímabil þeirra var á enda, haustið 1981, varð
dr. Gunnar Karlsson deildarforseti og dr.
Höskuldur Þráinsson varaforseti, og gegndu
þeir störfum út tímabilið.
María Jóhannsdóttir, B.A.(Hons.), hefur
verið fulltrúi deildarinnar allan tímann. I
mars — júlí 1980 hafði María leyfi frá
störfum, og var Anna Ambjamardóttir,
cand. mag., ráðin til að gegna starfinu á
meðan. Síðan hefur María gegnt starfi sínu
að hálfu en Anna séð um hinn helminginn.
Ritara hefur deildin að jafnaði haft í
tveim þriðju hlutum starfs síðan snemma á
árinu 1981, og hafa þegar fleiri konur gegnt
því starfi en svo að þær verði taldar hér.
Kennsla
Kennsluframboð hefur vaxið nokkuð í
deildinni þessi þrjú ár með vaxandi fjölda
stúdenta. Hér fer á eftir skrá yfir kennsluna
annars vegar fyrsta ár tímabilsins og hins
vegar það síðasta. Talið er í fimm eininga
námskeiðum, og þar sem námskeið voru
minni eða stærri hafa þau verið umreiknuð í
fimm eininga námskeið. Talið er eftir leið-
réttum eintökum af Kennsluskrá í skrifstofu
heimspekideildar.
Tafla I Fjöldi Fjöldi
námskeiða námskeiða
1979—80 1981—82
Almenn bókmenntafræði 14 14
Almenn málvísindi 18
Danska 12
Enska til BA-prófs 14 15
Enska til kandídatsprófs 4'/2 6
Finnska 6 6
Franska 11 12
Gríska 1 6
Heimspeki 11 11