Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 69
Heimspekideild og fræðasvið hennar
67
a) íslensk rit:
VI. bindi.
Matthías Jochumsson, Ljóð. Ólafur
Briem bjó til prentunar. Rvík 1980.
VII. bindi.
Upplýsing og saga. Sýnisbók sagnarit-
unar íslendinga á upplýsingaröld. Ingi
Sigurðsson bjó til prentunar. Rvík 1982.
b) Studia Islandica:
38. hefti.
Fríða Á. Sigurðardóttir, Leikrít Jökuls
Jakobssonar. Rvík 1980.
39. hefti.
Hermann Pálsson, Úr hugmyndaheimi
Hrafnkels sögu og Grettlu. Rvík 1981.
40. hefti.
Ólafur Jónsson, Bœkur og lesendur. Um
lestrarvenjur. Rvík 1982.
41. hefti.
Matthías Viðar Sæmundsson, Mynd nú-
tímamannsins. Um tilvistarleg viðhorf í
sögum Gunnars Gunnarssonar. Rvík
1982.
c) Frœðirit:
5. bindi.
Eysteinn Þorvaldsson, A tómskáldin.
Aðdragandi og upphaf módemisma í ís-
lenskri ljóðagerð. Rvík 1980.
Stofnunin hefur gefið út fjórðu ritröðina,
B.A.-ritgerðir í íslenskum bókmenntum og
almennri bókmenntafrœði. Var þessi ritröð
fjölrituð í litlu upplagi og stóð stofnunin ein
undir öllum kostnaði. Þar sem fjárveitingar
til stofnunarinnar á fjárlögum hafa farið si-
minnkandi að kaupmætti á undanfömum
árum, hefur stofnunin ekki séð sér annað
fært en fella þá ritröð niður um skeið, hvað
sem síðar kann að verða.
Bjarni Guðnason
Rannsóknastofnun í sagnfræði
Sagnfræðistofnun annaðist grundvallar-
rannsóknir í sagnfræði, miðlun og útgáfu
sagnfræðilegs efnis og rannsókna í samræmi
við reglugerð þarað lútandi frá 1971.
Starfslið og stjórn
Starfslið stofnunarinnar samkvæmt
reglugerð voru einkum sagnfræðikennarar í
fullu starfi við heimspekideild, en þeir voru
í lok tímabilsins sex og fækkað um einn frá
1. september 1981 samkvæmt ákvörðun
menntamálaráðuneytisins. Auk þeirra voru
ýmsir ráðnir til að vinna að einstökum verk-
efnum um takmarkaðan tíma. Voru það
einkum sagnfræðistúdentar í sumarvinnu.
Prófessor Bjöm Þorsteinsson var forstöðu-
maður stofnunarinnar á síðari hluta ársins
• 979 þar til hann lét af embætti sumarið
•980, en Gunnar Karlsson sem var annar
kennara í stjóminni var þá erlendis. Þá tók
prófessor Sveinbjöm Rafnsson óformlega
og til bráðabirgða við og var kosinn ásamt
Jóni Guðnasyni dósent í stjóm stofnunar-
innar á deildarfundi til næsta þriggja ára
kjörtímabils 1981—1983, frá ársbyrjun til
ársloka. Fulltrúar stúdenta á tímabilinu
voru 1979: Jens B. Baldursson; 1980: Gísli
Ágúst Gunnlaugsson og Anton Holt; 1980
og fram á sumar 1982: Guðmundur Hálf-
danarson.
Helstu rannsóknaverkefni
1. Vesturheimsferðir íslendinga á 19. og 20.
öld. Fyrir atbeina stofnunarinnar hafði
Júníus Kristinsson cand. mag. árið 1977
fullbúið og hreinritað skrá um íslendinga
þá sem til Ameríku fluttust á árunum
1870—1914. Með tilstyrk utanríkisráðu-
neytisins, einnig fyrir atbeina stofnunar-
innar, var hafist handa um setningu og
prentvinnu við skrána á árinu 1981, og
samdi Júníus nafnalykil við hana, sem