Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 71
Heimspekideild og fræðasvið hennar
69
styrk norrænna sjóða og stofnana. Ritstjóri
af hálfu stofnunarinnar var Ingi Sigurðsson,
Ph.D., en tíunda bindi af Excerpta kom út í
Kaupmannahöfn 1980.
Húsnæði og bókasafn
Bókasafn stofnunarinnar var varðveitt í
rannsóknarherbergi hennar í Ámagarði.
Stofn þess er bókasafn úr eigu Guðna Jóns-
sonar prófessors, sem erfingjar hans gáfu. Á
tímabilinu gáfu erfingjar Ólafs Hanssonar
prófessors nokkurt safn bóka úr eigu hans.
Leitast var við að auka safnið nýjum bókum
eftir því sem fjárhagur leyfði. Bækur þessar
komu kennurum og nemendum í sagnfræði
einkar vel við kennslu og rannsóknir. Var
svo komið að þrengsli voru farin að segja
verulega til sín í rannsóknarherbergi stofn-
unarinnar, en húsakynni hennar voru ekki
önnur utan herbergja fastráðinna kennara í
sagnfræði.
Fjármál
Fé var veitt á fjárlögum til almenns
rekstrar og náði jafnaðarlegast ekki árs-
launum eins framhaldsskólakennara. Fjár-
veiting hækkaði ekki til samræmis við
verðbólgu milli ára á tímabilinu; Rann-
sóknaverkefnin sem stunduð voru í skjóli
stofnunarinnar nutu styrks frá opinberum
rannsóknasjóðum, einkum Vísindasjóði, og
öðrum opinberum aðiljum.
Sveinbjörn Rafnsson
Málvísindastofnun Háskóla íslands
Málvísindastofnun Háskóla íslands hefur og því þykir ekki ástæða til að gera sérstaka
engar fjárveitingar fengið á þessu tímabili, grein fyrir starfi hennar hér.
Höskuldur Þráinsson
Orðabók háskólans
Starfsemi Orðabókar háskólans hefur
verið með svipuðum hætti á árunum
1980-82 og árin á undan. Ásgeir Blön-
dal Magnússon, sem var settur forstöðu-
maður Orðabókarinnar 1. jan. 1978, lét af
störfum í árslok 1979 fyrir aldurs sakir. Jón
Aðalsteinn Jónsson var skipaður forstöðu-
maður frá 1. jan. 1980, en hann hafði gegnt
sérfræðingsstarfi við Orðabókina frá 1. júlí
1955. Svavar Sigmundsson, lektor í Kaup-
mannahöfn, var skipaður sem sérfræðingur
við OH frá 1. júlí 1980. Hins vegar tók hann
ekki við því starfi, því að hann fékk launa-
laust leyfi um ársskeið frá Orðabókinni til
þess að halda áfram samningu samheita-
orðabókar á vegum Minningarsjóðs Þór-
bergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur.
Var það síðan framlengt aftur um eitt ár eða
til júníloka 1982 og svo áfram til júníloka
1983. Svavar var svo skipaður lektor við
heimspekideild Háskóla íslands frá 1. ágúst
1982 og sagði þá lausri stöðu sinni við OH.
Árið 1980 störfuðu því lengst af við OH
tveir sérfræðingar, Gunnlaugur Ingólfsson
og Guðrún Kvaran, auk forstöðumanns.
Guðrún Kvaran fékk launalaust leyfi frá
stofnuninni í tvo mánuði sumarið 1980 til að
ljúka doktorsprófi í Þýskalandi. Jafnframt
heimsótti hún á vegum Orðabókarinnar hið
heimsfræga Duden-útgáfufyrirtæki til að
kynna sér orðabókarstörf þess. Þetta sumar
sótti Gunnlaugur Ingólfsson alþjóðlegan
sumarskóla I hagnýtum málvísindum og
orðabókargerð, sem haldinn var í Exeter í