Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 83
Verkfræði- og raunvísindadeild og fræðasvið hennar
81
Með breytingum á reglugerð 15. desem-
ber 1981 var Jarðvísindastofu skipt í tvær
stofur, Jarðfræðastofu og Jarðeðlisfræði-
stofu. Háloftadeild heyrir nú undir Jarðeðl-
isfræðistofu.
Stjórnin fjallar um öll sameiginleg mál-
efni rannsóknastofa, tillögur um fjárveit-
ingar og skiptingu þeirra milli stofa. Stjóm-
in markar stofnuninni stefnu í rannsóknum,
hvað snertir val meiri háttar verkefna. For-
stöðumenn stofa hafa á hendi stjóm vís-
indalegra rannsókna og annast daglegan
rekstur þeirra, þ. á m. eftirlit með starfs-
mönnum hverrar stofu og fjármálum henn-
ar.
Formaður stjómar kemur fram fyrir
stofnunina í heild og er málsvari stjómar-
innar og fulltrúi hennar innan stofnunar-
innar og utan. Hann hefur eftirlit með
framkvæmd á ákvörðunum stjórnarinnar.
Við stofnunina starfar fastráðinn fram-
kvæmdastjóri. Hlutverk hans er almenn sýsl-
an í umboði stjórnar. Hann annast sam-
skipti við viðskiptaaðila, ráðuneyti og
stofnanir þeirra, svo sem Ríkisbókhald og
Ríkisendurskoðun, þegar með þarf. Fram-
kvæmdastjóri lætur stjórninni í té upplýs-
ingar um stöðu fjármála. Undir hann falla
skrifstofuhald, rekstur og viðhald fasteigna,
svo og verkstæði stofnunarinnar. Hallgrím-
ur Ólafsson gegndi stöðu framkvæmda-
stjóra árið 1979. I ársbyrjun 1980 tók Jón
Jósepsson við, og var hann framkvæmda-
stjóri til hausts 1982, er núverandi fram-
kvæmdastjóri, Elísabet Guðjohnsen, tók
við.
Skrifstofan hefur með höndum afgreiðslu
reikninga, starfsmannahald, innflutning,
skjalavörslu, vélritun og aðra skrifstofu-
þjónustu.
Umsjónarmaður sér um viðhald húss
stofnunarinnar, hefur umsjón með ræstingu
hússins og rekstri bíla stofnunarinnar.
Á verkstæði vinnur tækjafræðingur, sem
sér um viðhald og nýsmíði áhalda og tækja.
Kafli þessi er skráður af þeirri stjórn er sat
frá hausti 1979 til hausts 1983.
Örn Helgason
1. Eðlisfræðistofa
Á árunum 1979—82 störfuðu við eðlis-
fræðistofu 5 fastráðnir kennarar, 3 sérfræð-
mgar og 5—8 lausráðnir verkfræðingar og
eðlisfræðingar. Á þessu tímabili var auk
eldri verkefna unnið að þremur nýjum eða
mjög efldum viðfangsefnum:
*• uppbyggingu rannsókna í storkufræði,
2- hönnun og smíði rafeindatækja með al-
menna framleiðslu tækjanna að mark-
miði og
3- athugunum á nýtingu innlendra orku-
gjafa.
Eðlisfræði þéttefnis — storkufræði
Lengi hefur verið rætt um að efla rann-
sóknir í storkufræði við Raunvísindastofn-
un, enda eru margvíslegar grunnrannsóknir
í þessari grein viðráðanlegar, hvað kostnað
varðar, fyrir smærri rannsóknastofnanir, og
þær hafa oft gildi fyrir iðnað.
Rannsóknir þessar hófust á Eðlisfræði-
stofu með komu Mössbauertækja, sem Öm
Helgason hefur sett upp og beitt við rann-
sóknir sínar á innri gerð bergs. Síðustu ár
hefur storkufræðin verðið efld verulega. Dr.
Hans Kr. Guðmundsson var ráðinn til
rannsóknanna 1980 og dr. Þorsteinn I. Sig-
fússon 1982, og Heiðar Jón Hannesson hef-
ur verið aðstoðarmaður þeirra.
Stefnt er að því að byggja upp aðstöðu til
að rannsaka innra eðli málma, einkum seg-