Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 87
Verkfræði- og raunvísindadeild og fræðasvið hennar
85
ákveða amínósýruröð og bindisérvirkni
blæðingarensíms e (HT-e). Þá er einnig
verið að athuga áhrif cobalts í virknistöð
blæðingarensíms e á mynd og starfsemi
þess. Einnig er verið að gera samanburð á
mynd og starfsemi blæðingarensíma c og d
(HT-c og HT-d), og unnið að frekari
hreinsun á blæðingarensími b (HT-b).
Samvinna er höfð við University of Virginia
um rannsóknir þessar.
Rannsóknir á karbosilönum (Ingvar
Árnason, Ágúst Kvaran, Ásgeir Bjarnason)
Karbosilön eru lífræn kísilsambönd þar
sem kolefnis- og kísilfrumeindir skiptast á í
grind þeirri, sem myndar sameind. Rann-
sóknirnar beinast einkum að lögun og
hreyfanleika hringlaga karbosilana með
NMR tækni. Smíðuð eru hringlaga efni með
mismörgum og misstórum tengihópum, þau
hreinsuð og aðgreind með tiltækum aðferð-
um. NMR-róf þessara efna eru yfirleitt
atjög flókin og ekki leysanleg nema með
aðstoð hermilíkans í tölvu, en gefa mikils-
verðar upplýsingar um lögun og hreyfan-
leika sameindanna. Samvinna er höfð við
Háskólann í Karlsruhe, V-Þýskalandi, um
rannsóknir þessar.
Málmlífræn efnafræði (Sigurjón N. Ólafs-
s°n, Ágúst Kvaran)
Hnnið er að efnasmíð nýrra málmkom-
plexa, þar sem miðatómið er hliðarmálmur,
en tengihóparnir lífræn fosfór- og brenni-
steinsrík efnasambönd (organófosfór sub-
stitueruð díþíóformöt). Eðlisefnafræðileg-
um aðferðum er beitt við að ákvarða sam-
setningu, byggingu og ýmsa eiginleika efn-
anna.
Kjarnaróf þeirra eru sannprófuð með því
að útbúa hermilíkön í tölvu, og fást þannig
uPplýsingar um byggingu komplexanna í
lausn.
Rannsóknir þessar eru unnar í samvinnu
við Háskólann í Hamborg, þar sem hér er
ekki völ á nauðsynlegum tækjakosti.
Orkutilfærsla milli sameinda (Kristján S.
Kristjánsson)
Tilgangur þessara rannsókna er að auka
þekkingu á örvuðu ástandi einfaldra sam-
einda með mælingum á hraða aförvunar
eftir ljósörvun í hærra orkuástand. Niður-
stöðurnar eru bornar saman við stærð-
fræðileg líkön.
Notkun munsturleitar við gagnaúr-
vinnslu (Kristján S. Kristjánsson, Sigurjón
N. Ólafsson)
Unnið er að uppsetningu tölvuforrits, sem
aðstoðar við röðun sýna í flokka eftir nið-
urstöðum efnagreininga á ýmsum þáttum
sýnisins. Meðal verkefna er munsturleit í
niðurstöðum efnagreininga á hjartasýnum.
Leitað verður að tengslum milli hjartasjúk-
dóma og magns ákveðinna snefilefna og
fitusýra í hjartavöðva.
Litrófsgreining orkuríkra sameinda
(Ágúst Kvaran)
Tilgangur rannsóknanna er að auka
þekkingu á efnasamböndum sem nothæf
eru til myndunar lasergeisla. Litróf vegna
útgeislunar frá örvuðum, orkuríkum sam-
eindum eru skráð. Litrófin eru greind með
hjálp tölvu til að afla upplýsinga um ýmsa
eðlis- og efnafræðilega eiginleika hinna
orkuríku sameinda.
Efnasmíð og oxun enamína (Jón Geirs-
son)
Tilgangur þessa verkefnis er að finna
heppilegar leiðir til nýsmíði enamína, en
aðaláherslan liggur í athugun á oxun slíkra
efnasambanda. Reynt er að skýra hvarf-
gang þessara oxunarhvarfa og kanna áhrif
leysis og hitastigs á myndefnadreifingu.
Oxunarmiðill er súrefni, með og án hvata
(málmkatjónir), svo og örvað súrefni.
Notkun mós til eldsneytisframleiðslu
(Jónas Bjamason)
Athugun á notkun íslensks mós til fram-