Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 95
Verkfræði- og raunvísindadeild og fræðasvið hennar
4.2. Háloftadeild
Starfslið og húsnæði
Fastir starfsmenn háloftadeildar eru þrír:
Einn sérfræðingur, dr. Þorsteinn Sæmunds-
son, sem jafnframt er deildarstjóri, og tveir
aðstoðarmenn, Þorgerður Sigurgeirsdóttir (í
hlutastarfi) og Pálmi Ingólfsson.
Deildin er til húsa í byggingu Raunvís-
'ndastofnunar háskólans við Dunhaga.
Starfsemi á vegum deildarinnar fer einnig
fram nokkurn hluta úr degi hverjum í seg-
nlmælingastöð, sem deildin rekur í Leirvogi
í Mosfellssveit.
Starfsemi
Aðalverkefni háloftadeildar á tímabilinu
1979—1982 voru tvö: Rekstur segulmæl-
'ngastöðvar háskólans og útgáfa almanaks
háskólans (Islandsalmanaksins).
Segulmœlingar hafa frá öndverðu verið
nteginviðfangsefni háloftadeildar. Mæling-
ar þessar eru gerðar í þeim tilgangi að kanna
breytingar sem verða á segulsviði jarðar,
bæði skammtímabreytingar, sem orsakast af
rafagnastraumum frá sólu, og langtíma-
breytingar, sem rekja má til breytinga í
kjarna jarðar. Mælingarnar fara að mestu
leyti fram í Leirvogsstöðinni, en saman-
btirðarmælingar eru auk þess gerðar við og
v>ð á föstum stöðum úti á landi. Á árunum
'979—1982 voru gerðar mælingar við
Guðnastaði í Landeyjum, við Húsey á Hér-
aði og á Patreksfirði (sem er nýr mælinga-
staður).
Leirvogsstöðin er eina segulmælinga-
stöðin hérlendis. Er hún af mörgum talin ein
sú mikilvægasta í heiminum. Því veldur lega
Elands, mitt í norðurljósabeltinu og miðja
Vegu milli meginlanda. Bráðabirgðaniður-
stöður mælinga í Leirvogi eru sendar mán-
uðarlega til gagnamiðstöðva austan hafs og
Vestan. Jafnframt sinnir deildin að staðaldri
beiðnum erlendis frá um upplýsingar er
varða mælingarnar. Slíkar óskir koma frá
stofnunum og einstaklingum, oft í tengslum
við jarðeðlisfræðilegar rannsóknir með
gervitunglum. Innanlands hafa upplýsingar
aðallega verið veittar aðilum sem fást við
annars konar segulmælingar og kortagerð,
þar á meðal gerð sjókorta og flugkorta.
Nokkrar endurbætur voru gerðar á bún-
aði Leirvogsstöðvarinnar á því tímabili sem
hér um ræðir. Komið var fyrir róteindaseg-
ulmæli af Varian-gerð, sem áður hafði verið
notaður til landgrunnsrannsókna. Keypt var
frá Danmörku tæki af nýrri tegund til seg-
ulstefnumælinga (Quartz Declinometer). Þá
fékk háloftadeild smátölvu og tölvuprent-
ara, sem komu í góðar þarfir. Nokkrar
breytingar og endurbætur voru gerðar á
húsum og tækjabúnaði í Leirvogi, m.a. í
sambandi við norrænt segulmælingamót
þar (sjá síðar).
Háloftadeild gefur út árlega skýrslu á
ensku (Leirvogur Magnetic Resuits) og er
skýrslan send aðilum sem fást við skyldar
rannsóknir erlendis.
Önnur starfsemi í Leirvogi. Auk segul-
mælinganna fara fram í Leirvogsstöðinni
ríómælingar, sem miða að því að kanna
breytingar á rafhvolfi jarðar með því að
fylgjast með styrkleika rafbylgna sem berast
utan úr himingeimnum.
í Leirvogi er nákvæm klukka og mjög
nákvæm tímaskráning vegna segulmæling-
anna. Að ósk símstjórans í Reykjavík er þar
fylgst með gangi símaklukkunnar (04) og
gert viðvart um frávik frá réttum tíma.
Almanak háskólans (íslandsalmanakið)
hefur frá upphafi verið grundvallarrit fyrir
alla almanaksútgáfu hér á landi. Það er
einnig gefið út sem hluti af almanaki Hins
íslenska þjóðvinafélags samkvæmt samn-