Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 112
110
Árbók Háskóla íslands
stöðu sinni á ný, en hann hafði í þrjú ár verið
í leyfi og gegnt embætti hagsýslustjóra rík-
isins.
Þórir Einarsson var skipaður prófessor 1.
september 1981, en hafði áður verið settur
prófessor.
Því fer fjarri, að fastir kennarar geti ann-
ast kennslu í þeim rúmlega 50 námsgreinum
(þar af sjö tveggja missera greinum), sem
eru á kennsluskrá deildarinnar. Stór hluti
kennslunnar er því í höndum stundakenn-
ara, en þeir eru rúmlega tvöfalt fleiri en
fastir kennarar. Kennslu- og stjómunarálag
á fasta kennara er mikið, ekki síst ef þess er
gætt, að ekki hefur fengist fé á fjárlögum til
að ráða deildarfulltrúa.
Frá rannsóknum kennara er greint á öðr-
um stað í þessu riti.
Húsnæðismál
Húsnæðismál deildarinnar eru erfið, og
versnaði ástandið í þeim málum á tímabil-
inu, en sömu sögu er reyndar að segja um
aðrar deildir háskólans. Um vinnuherbergi
og sameiginlega aðstöðu kennara hefur
verið rætt áður í Árbók háskólans og er litlu
hér við að bæta, nema hvað kennarastofa
viðskiptadeildar á efstu hæð í norðurenda
aðalbyggingar var lögð undir skjáver.
Nemendur í viðskiptafræði eru nú svo
margir að þeir rúmast tæplega í stærstu
kennslustofum háskólans. Kennsla á fyrsta
ári fer fram í hátíðasal við lélegar aðstæður,
og er þar þröngt setinn bekkurinn, en nem-
endur á öðru og jafnvel þriðja ári troðfylla
stærstu kennslustofur sem völ er á. Kennar-
ar viðskiptadeildar binda miklar vonir við
hið nýja hugvísindahús, sem verið er að
reisa á háskólalóðinni, en ákveðið er að
deildin fái þar inni.
Ólafur Björnsson sjötugur
Prófessor Ólafur Bjömsson varð sjötugur
hinn 2. febrúar 1982 og ákvað að láta af
embætti í lok ársins. Ólafur hefur kennt
þjóðhagfræði og skyldar greinar við Há-
skóla íslands frá því fyrst var hafin kennsla í
viðskiptafræðum við stofnunina, en það var
árið 1941. Áður hafði hann kennt við Við-
skiptaháskóla íslands, sem stofnaður var
árið 1938. Er Ólafur lét af embætti hafði
hann lengstan samfelldan starfsaldur allra
prófessora Háskólans.
I tilefni af sjötugsafmæli Ólafs var
ákveðið í viðskiptadeild að heiðra hann með
útgáfu afmælisrits, en í það skrifa nokkrir
samkennarar prófessorsins og aðrir sam-
starfsmenn. Ritið er gefið út í samvinnu við
Seðlabanka íslands og er sérstakt hefti af
Fjármálatíðindum.
Gestkomandi fyrirlesarar
Ýmsir merkir erlendir vísindamenn
heimsóttu viðskiptadeild árin 1979—1982
og héldu þar fyrirlestra.
í apríl 1980 flutti nóbelshagfræðingurinn
FRIEDRICH A. HAYEK erindi í boði
deildarinnar um verðbólguvandann og ráð
við honum.
Ijúní 1981 voru á ferð tveir erlendir gest-
ir. Hinn 15. júní flutti BJERKE FOG,
prófessor við Verslunarháskólann í Kaup-
mannahöfn, fyrirlestur um markaðsaðstæð-
ur í dönsku atvinnulífi, og þremur dögum
síðar, 18. júní, flutti hinn frægi hagfræðing-
ur NICHOLAS KALDOR lávarður erindi
um verðbólgu sem þrálátt vandamál.
Ári síðar, í júní 1982, heimsótti við-
skiptadeild kanadíski hagfræðingurinn C.L.
BARBER frá Manitoba-háskóla, og hinn 9.
júní flutti hann opinberan fyrirlestur um
orsakir verðbólgu í vestrænum löndum á
síðustu áratugum.
Loks er að geta heimsóknar heimskunns
bandarísks hagfræðings, JAMES M.
BUCHANAN frá Virginia Polytechnic In-
stitute and State University. Buchanan
dvaldist á íslandi nokkra daga í september
1982 og flutti opinberan fyrirlestur í boði
deildarinnar um almannavalsfræði, sem við
hann er kennd.
Þráinn Eggertsson