Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 115
Tannlæknadeild og fræðasvið hennar
113
í sjúkdómsgreiningu og röntgenfræði og
endurráðinn 1. 9. 1982. Jón Viðar lektor er
sérmenntaður í munn- og kjálkaskurðlækn-
ingum í Bretlandi.
William Peter Holbrook, Ph.D., tann-
læknir og sérfræðingur frá Bretlandi í ör-
verufræðum, var ráðinn lektor (50%) til
tveggja ára 1.9. 1981 í örveru- og ónæmis-
fræðum.
Þórður Eydal Magnússon
Félagsvísindadeild og fræðasvið hennar
Inngangur
Félagsvísindadeild tók til starfa 15. sept-
ember 1976. Deildin starfar á grundvelli
reglugerðar sem staðfest var af mennta-
málaráðherra þann 22. september 1976.
Sex fræðagreinar eru kenndar sem aðal-
greinar til B.A.-prófs.
Þessar sex greinar eru:
Bókasafnsfræði
Félagsfræði
Mannfræði
Sálarfræði
Stjómmálafræði
Uppeldisfræði
Þá er og kennd í deildinni uppeldis- og
kennslufræði til kennsluréttinda.
Ein grein, félagsráðgjöf, er kennd sem
aukagrein til B.A.-prófs. Nemendur sem
taka félagsráðgjöf sem aukagrein til B.A.-
prófs geta síðan öðlast réttindi sem félags-
ráðgjafar að viðbættu eins árs námi að
loknu prófi í einhverri af aðalgreinum
deildarinnar.
Félagsráðgjafanámið hófst haustið 1978
en þá var nemendum gert mögulegt að taka
grundvallamámskeið í félagsráðgjöf. Fyrstu
félagsráðgjafarnir voru útskrifaðir haustið
1982.
Húsnæðismál
Léleg aðstaða í húsnæðismálum hefur frá
uPphafi verið félagsvísindadeild fjötur um
fót. Deildin á sér engan fastan samastað og
hufa kennarar deildarinnar hrakist úr ein-
um stað í annan í þau sex ár sem liðin eru frá
stofnun hennar. Einkum er það til baga
hversu dreift húsnæðið er, en deildin starfar
á mörgum stöðum í bænum. Sex af sjö
kennurum í stjómmálafræði, mannfræði og
félagsfræði hafa vinnuherbergi að Skólabrú
2, en sá sjöundi hefur enn enga vinnuað-
stöðu fengið. Kennarar í sálarfræði hafa
vinnuherbergi á Smyrilsvegi 22. Einn kenn-
aranna í uppeldisfræði hefur vinnuherbergi
í Ámagarði, annar hefur vinnuherbergi á
Smyrilsvegi 22, og sá þriðji hefur vinnuher-
bergi á Hjarðarhaga 28. Annar kennarinn í
bókasafnsfræði hefur vinnuherbergi í
Ámagarði og hinn í Skólabæ við Suðurgötu.
Kennslustjóri í félagsráðgjöf hefur einnig
aðstöðu í Skólabæ. Skrifstofa deildarinnar
hefur verið í Ámagarði frá því haustið 1979.
Rannsóknaraðstöðu hafa kennarar deildar-
innar litla sem enga. Engin vinnuaðstaða er
fyrir stundakennara deildarinnar.
Kennslustofur eru í Aðalbyggingu, Áma-
garði og Lögbergi, en bagalega skortir að-
stöðu til verklegrar kennslu. Vinnu- og
lestraraðstaða nemenda er og bágborin.
Nemendur í sumum greinum, s.s. uppeldis-
fræði, hafa lengst af enga aðstöðu haft.
Þrátt fyrir þessa dapurlegu lýsingu eru
menn þó bjartsýnir á að innan tíðar muni
rætast verulega úr húsnæðisvanda deildar-
innar. Þegar þetta er ritað í febrúar 1983 eru
framkvæmdir við fyrri hluta „Hugvísinda-
húss“ langt komnar, en þar mun félagsvís-
indadeild vera ætlað rúm til frambúðar.