Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 159
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
157
Gylfi Þ. Gíslason, er verið hafði mennta-
málaráðherra er nefndin var á stofn sett,
gerði grein fyrir tilorðningu nefndarinnar
og árangri af störfum hennar á undanförn-
um árum.
Miklar umræður urðu um þennan dag-
skrárlið, og voru skoðanir skiptar um það,
hvort rétt sé að Samstarfsnefnd um há-
skólamálefni haldi áfram að starfa. Fram
kom tillaga frá Herði Filippussyni um að
háskólaráð tilnefni ekki fulltrúa í nefndina.
^ar sú tillaga felld með 5 atkvæðum gegn 5.
Tillaga rektors um að Sveinbjöm Björns-
son prófessor verði fulltrúi háskólaráðs í
nefndinni næstu tvö ár frá I. jan. 1982 var
samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
28.01.82
Reglur um rannsóknafé
Teknar voru að nýju til umræðu tillögur
<tð Reglum fyrir Rannsóknasjóð Háskóla ís-
lands og Reglum um ráðstöfun „fjár til
frjálsrar rannsóknastarfsemi“. Tillögurnar
voru samþykktar lítt breyttar. 04.03.82
Stjórn Rannsóknasjóðs
I stjórn Rannsóknasjóðs til tveggja ára
v°ru kjörnir Þráinn Eggertsson prófessor og
Snorri Páll Kjaran aðjúnkt. (Rektor er for-
maður sjóðsins ex officio. Sjá Reglur fyrir
Rannsóknasjóð Háskóla íslands í XII.
kafla.) 13.05.82
Úthlutunarnefnd rannsóknafjár
I nefnd til úthlutunar styrkja af „fjárveit-
'ngu til frjálsrar rannsóknastarfsemi" voru
Jórnir prófessorarnir Sigmundur Guð-
jarnason, Höskuldur Þráinsson og Arn-
'jótur Björnsson. 13.05.82
Samræmingarnefnd
i Samræmingarnefnd til þriggja ára voru
jörnir Stefán Sörensson háskólaritari, Pét-
ur K. Maack dósent og Þórir Einarsson
prófessor. Nefndinni er heimilt að ráða sér
starfsmann til útreikninga á vinnuframtöl-
um kennara. 09.09.82
Árleg skráning og námskeiðaskráning
Lögð fram tillaga um breytingu á 37. gr.
reglugerðar fyrir Háskóla Islands um árlega
skráningu stúdenta, er áður var fram lögð á
háskólaráðsfundi 5. mars 1981. Var tillagan
samþykkt samhljóða:
„2. mgr. 37. gr. reglugerðar háskólans
verði breytt þannig, að í fyrstu setningu
málsgreinarinnar falli niður fyrstu tvö orð-
in, „í september“, og setningin hljóði þá
þannig: „Ár hvert skulu aðrir en þeir, sem
frumskráðir eru til náms á tilteknu ári, láta
skrásetja sig og greiða þá skrásetningar-
gjald.“ Þá verði aftan við málsgreinina bætt
setningunni: „Háskólaráð ákveður hvenær
árleg skráning fer fram.““
Jafnframt var lögð fram eftirfarandi til-
laga frá Halldóri Guðjónssyni kennslu-
stjóra:
„Árleg skráning og námskeiðaskráning á
haustmisseri fyrir stúdenta á öðru og síðari
námsárum verði frá 20. maí til 10. júní.
Námskeiðaskráning fyrir fyrsta árs stúdenta
verði við upphaf kennslu að hausti, og þá
verði jafnframt endurskoðuð skráning
stúdenta á síðari árum náms.“
Var hún samþykkt að því tilskildu, að
staðfesting hafi fengist á ofangreindri
reglugerðarsamþykkt. 23.04.82
Afbrigðilegar inntökubeiðnir
Rektor lagði til, að afbrigðilegar inn-
tökubeiðnir verði framvegis afgreiddar í
umboði háskólaráðs af nefnd, er verði skip-
uð kennslustjóra, aðstoðarháskólaritara og
einum fulltrúa stúdenta, sem tilnefndur
verði á næsta fundi. Samþykkt. 28.01.82