Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 163
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
161
ferðastyrkur að upphæð 4.200 kr. og tveir
aðrir ferðastyrkir, hvor að upphæð 3.750 kr.
2. Ferðastyrkir sérfrœðinga háskólastofn-
ana: Fjórtán ferðastyrkir, hver að upphæð
3.750 kr.
3. Ferðastyrkir kandídata: Fimm ferða-
styrkir, hver að upphæð 7.500 kr.
4. Verkefnaslyrkir: Fimm verkefnastyrk-
ir, samtals að upphæð 52.500 kr.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
03.06.82
Háskólaráð úthlutaði til viðbótar á fund-
um sínum 19. ágúst og 2. september 1982
þrem ferðastyrkjum, tveim að upphæð
3.750 kr. og einum að upphæð 7.500 kr.;
einum verkefnastyrk, kr. 7.500 og einum
viðbótarstyrk til leiðréttingar, kr. 3.300.
Ludvig Storr sjóður
I stjórn Menningar- og framfarasjóðs
Ludvig Storr var kjörinn Helgi Jóhannes-
son, stud. polyt., í stað Guðmundar Þor-
björnssonar, er lokið hefur hér námi.
17.12.81
Olav Brunborg sjóður
Samþykkt var að mæla með því við Há-
skólann í Osló, að styrkur úr Olav Brunborg
Minnefond verði veittur Jóni Gíslasyni.
17.12.81
Háskólinn í Osló mælir með því, að Jan
Philip Junker Eikeland verði veittur styrkur
úr Minningarsjóði Olav Brunborg. Sam-
þykkt einróma. 14.01.82.
MinningarsjóðurTheodórs Johnson
Samþykkt var að veita eftirgreindum
styrki úr Minningarsjóði Theodórs John-
son; Guðbjörgu Guðmundsdóttur, nem-
anda í heimspekideild, kr. 2500; Sigurgísla
Ingimarssyni, nemanda í tannlæknadeild,
kr. 2500. 14.01.82
Sjóðurinn Eggert
Lögð voru fram drög að skipulagsskrá
fyrir sjóðinn Eggert, sem stofnaður er með
gjöf Eggerts Briem. Voru þau samþykkt
með einni breytingu, sem færð er inn í hin
framlögðu drög. 23.06.82
VI. Gjafir
Lagt fram bréf Bjarna Stefánssonar h.f.,
^ags. 12. jan. s.l. Er þar frá því greint, að
Luxor-fyrirtækið og Hljómtækjadeild
Karnabæjar gefi Háskóla Islands (náms-
braut í tölvunarfræði) LUXOR ABC 800 C
tölvusamstæðu. Er gjöf þessari ætlað að
styrkja kennslu í tölvunarfræði við háskól-
ann. 04.03.82
VII. Málefni kennara
Samþykkt samhljóða svohljóðandi álykt-
unartillaga (frá Herði Filippussyni);
..Háskólaráð samþykkir, að háskóla-
kennurum sem látið hafa af störfum fyrir
a'durs sakir skuli veitt aðstaða til að sinna
afram rannsóknarstörfum við skólann, eftir
Pví sem við verður komið.“ 05.11.81
Lagt fram bréf dr. Sigurðar Þórarinssonar
prófessors, dags. 26. júní s.l. Óskar hann
heimildar til að kenna aðeins tvo fyrirlestra í
viku á haustmisseri 1982 til þess að geta
sinnt ritstörfum. Hann mun láta af embætti
vegna aldurs í árslok 1982. Samþykkt sam-
hljóða. 15.10.81