Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 165
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
163
þjálfun, læknisfræði og tannlæknisfræði
fyrir fleiri en eitt ár í senn. Jafnframt var lagt
fram bréf Samfélagsins, félags þjóðfélags-
fræðinema, dags. í dag, þar sem harðlega er
mótmælt þeirri tillögu Guðmundar Magn-
ússonar rektors, að heimilað verði að taka
ákvörðun um fjöldatakmarkanir fyrir fleiri
en eitt ár í senn.
Rektor óskaði svofelldrar bókunar:
„I tilefni af þessum mótmælum skal tekið
fram, að tiilaga sú, sem mér er eignuð, var
borin fram í háskólaráði á síðasta vori af
forseta tannlæknadeildar og óformlega við
mig af forseta læknadeildar. Ég tel að hug-
myndir um slíka breytingu verði að ræða
með tillögum um aðrar breytingar á lögum
og reglugerð háskólans.“ 18.02.82
Lagt fram bréf Stúdentaráðs, dags. 5.
mars. Er þar greint frá ályktunum fundar í
menntamálanefnd ráðsins á fundi 5. mars
s.l. Mótmælir fundurinn framkominni til-
lögu um heimild til að láta ákvörðun um
beitingu fjöldatakmarkana gilda fyrir fleiri
en eitt ár í senn. Skorað er á háskólaráð að
fella þá tillögu og jafnframt að beita sér fyrir
því, að aflétt verði fjöldatakmörkunum í
þeim deildum, sem þeim er nú beitt. Einnig
var lagt fram bréf Félags læknanema, dags.
3. mars. Lýst er andstöðu við tillögur um
ótímabundna beitingu fjöldatakmarkana.
ítrekuð er sú skoðun læknanema að þeir séu
alfarið andvígir beitingu fjöldatakmarkana í
Háskóla Islands. 01.04.82.
Lögð fram umsögn deildarráðs lækna-
deildar um bréf Félags læknanema, dags.
25.3. 1982, er lagt var fram á síðasta fundi
háskólaráðs. (Var í bréfinu skorað á há-
skólaráð, að ákvörðun um beitingu fjölda-
takmarkana inn á 2. námsár haustið 1982
verði dregin til baka. Ritstj.) Telur deildar-
ráð, að ákvörðun um fjöldatakmörkun skuli
standa óbreytt að sinni, þó að líkurnar fyrir
því, að beita þurfi fjöldatakmörkunum, hafi
ntinnkað verulega.
Lagði Atli Eyjólfsson fram svohljóðandi
tillögu: „Háskólaráð samþykkir, að áður
samþykktri takmörkun stúdenta í lækna-
deild við 36 yfir á 2. námsár haustið 1982
verði ekki beitt.“ Undir tillöguna rita, auk
Atla, þau Eiríkur Ingólfsson, Hrund Ólafs-
dóttir og Stefán Jóh. Stefánsson.
Urðu miklar umræður um fjöldatak-
markanir. Lagði rektor til, að málinu yrði
frestað fram yfir próf í vor. Var sú tillaga
felld með 7 atkvæðum gegn 6.
Urðu enn miklar umræður, og kom fram í
lok þeirra svofelld tillaga frá rektor:
„Með tilliti til þeirra sérstöku aðstæðna,
sem um getur í erindi Félags læknanema frá
25.3. s.l., samþykkir háskólaráð að þessu
sinni, að umræddir 40 nemendur á fyrsta ári
fái inngöngu á annað námsár, enda fullnægi
þeir skilyrðum um lágmarkseinkunn."
Drógu stúdentar sína tillögu til baka, er
tillaga rektors kom fram. Var tillaga rektors
samþykkt samhljóða. 23.04.82
1. Tekin var til umræðu tillaga stjórnar
námsbrautar í sjúkraþjálfun um að teknir
verði 18 stúdentar á 1. námsár á hausti
komanda.
Á fundinn kom María Þorsteinsdóttir
lektor, formaður námsbrautarstjórnar, og
skýrði ástæður til tillögunnar. Einnig var
fram lögð skýrsla um húsnæðismál náms-
brautarinnar.
Dagskrárliður þessi var almennt ræddur,
en afgreiðslu frestað til næsta fundar að ósk
Guðvarðar Gunnlaugssonar, og lét hann
sömu ósk í ljósi varðandi tvo næstu dag-
skrárliði.
2. Lögð var fram tillaga tannlæknadeild-
ar, að átta þeirra nemenda deildarinnar á
fyrsta námsári, er hæsta meðaleinkunn
hljóta að afloknum vorprófum, verði heim-
iluð skrásetning á annað námsár á hausti
komanda.
Mælti deildarforseti fyrir tillögunni.
Margir háskólaráðsmanna tóku til máls um