Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 167
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
165
IX. Annáll
Brautskráning kandídata fór fram í há-
tíðasal háskólans 24. október 1981 og 27.
febrúar 1982 kl. 2 síðdegis. Rektor flutti
ræðu, deildarforsetar afhentu prófskírteini,
og Háskólakórinn söng undir stjórn Hjálm-
ars Ragnarssonar tónskálds.
Háskólahátíð var haldin laugardaginn
26. júní 1982 í Samkomuhúsi háskólans við
Hagatorg (Háskólabíó), og hófst hún kl. 2
síðdegis. Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari söng við undirleik Reynis Axels-
sonar, rektor flutti ræðu, deildarforsetar af-
hentu prófskírteini, og Háskólakórinn söng
undir stjórn Hjálmars Ragnarssonar tón-
skálds.
Ræður rektors, er hann flutti við þessi
tækifaeri, eru birtar í 2. kafla hér að framan.
Háskólaklúbbur í Skólabæ
Húsnæði háskólans að Suðurgötu 26 (gjöf
•lóns Ólafssonar, hrl., sjá Árbók 1969—73, s.
41 og 152) var tekið 1 notkun með hátíðlegri
athöfn í Skólabæ, en svo hefur húsið verið
nefnt í minningu Hólavallarskóla, laugar-
daginii 17. október 1981 (sjá Fréttabréf H.í.
2 (1981), 3. og 4. tbl.). Hefur húsið verið
búið húsgögnum Einars Benediktssonar (í
e*nni stofu) og listaverkum úr Listasafni
Háskóla fslands. Flutti rektor ræðu við það
tækifæri, og formaður Félags háskóla-
n>anna, próf. Gunnar G. Schram, þakkaði
Þa aðstöðu, er kennurum væri þar veitt.
háðu menn síðan veitingar.
Fimmtudaginn 29. október 1981 var
hólabær tekinn í notkun fyrir háskóla-
kennara. Var þar opnað mötuneyti (hádeg-
ismatur), og „Háskólaklúbburinn í Skóla-
bæ“ tók til starfa. Var hann opinn fyrst um
sinn á fimmtudögum og föstudögum kl.
16—19.
Einnig hófust not háskólans af Skólabæ
til gestamóttöku, og aðstaða fékkst þar fyrir
fámenna fundi.
Orgel háskólans
Við athöfn er fram fór í kapellu háskól-
ans 15. október 1981 að viðstöddum full-
trúum háskólaráðs, kennurum, starfsfólki á
skrifstofu háskólans og stúdentum var tekið
í notkun nýtt orgel, smíðað af orgelverk-
smiðjunni T.H. Frobenius og Sonner í
Lyngby.
Rektor Háskóla íslands, prófessor Guð-
mundur Magnússon, flutti ræðu og dr.
Hallgrímur Helgason dósent lék íslenskt
kóralforspil á hið nýja orgel og flutti ávarp.
Tónleikanefnd
Sigurður Steinþórsson dósent var kjörinn
1 Tónleikanefnd háskólans í stað Magnúsar
Jóhannssonar dósents, er óskaði lausnar úr
nefndinni, á fundi háskólaráðs 24. sept.
1981.
Stjórn Norræna hússins
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari
var kjörinn fulltrúi háskólans í stjóm Nor-
ræna hússins, og Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor til vara, á fundi háskólaráðs sama
dag.