Hugur - 01.01.2002, Qupperneq 82

Hugur - 01.01.2002, Qupperneq 82
Hugur Atli Harðarson námsgreinanna komist til skila. Skólunum er t.d. ætlað að stuðla að al- hliða þroska og búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi. Ég tel mig nú hafa fært gild rök fyrir því að allir skólar hljóti að reyna að móta siðferði nemenda sinna að einhverju marki og að íslenskum grunn- og framhaldsskólum sé ætlað allvíðtækt hlutverk á þessu sviði. Þá er komið að því að spyrja hvernig best sé að skólarnir geri þetta. Hingað til hafa skólar rækt uppeldishlutverk sitt með því, fyrst og fremst, að kenna námsgreinar eins og tungumál, stærðfræði og náttúru- fræði. Þegar vel tekst til er þjálfun í víðsýni, umburðarlyndi, samvisku- semi og heiðarleika og fleiru í þeim dúr innifalin í kennslu flestra náms- greina. Með þátttöku í félagslífi, sem yfírleitt er stjórnað í samvinnu nemendafélaga og skólastjórnenda, læra nemendur lýðræðislegar leik- reglur og fleira því um líkt. Ekkert af þessu þarf þó að fela í sér umræð- ur um siðferðileg efni. Skólastarfið innrætir nemendum hátterni og við- horf að mestu án þess að þau gildi sem liggja til grundvallar séu rök- rædd eða gagnrýnd. Svipaða sögu má segja um siðferðilegt uppeldi á flestum heimilum. Alveg eins og börn læra að tala áður en þau læra málfræði hljóta þau að læra hegðun og siði áður en þau læra siðfræði. En eigi skólarnir í raun og veru að temja nemendum gagnrýna hugsun um siðferðileg efni geta þeir ekki látið sér duga að siða þá. Það ætti líka að kenna þeim að ræða um siðferðileg álitamál, rökstyðja gildismat og siðadóma, gagnrýna skoð- anir, venjur og siði. Stundum er gagnrýninni umræðu fléttað saman við kennslu í samfélagsgreinum eða trúarbragðafræðum. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að það geti skilað góðum árangri. Ég sé heldur ekkert því til fyrirstöðu að námsefni og kennsluaðferðir af því tagi sem Hreinn Pálsson íjallar um og kenndar eru við „barnaheimspeki“ geti gegnt þessu hlutverki. Hér, eins og víðar, eru til fleiri en ein og fleiri en tvær leiðir að sama marki. Að samfélagsgreinum, trúarbragðafræðum og barnaheim- speki ólöstuðum held ég samt að kennsla í bókmenntum sé skilvirkasta og greiðasta leiðin til að glæða með nemendum gagnrýna hugsun um sið- ferðileg álitamál og þjálfa þá í að rökræða um siðferðileg efni og gera sér grein fyrir gildismati sínu og viðmælenda sinna. Við gerum okkur yfirleitt grein fyrir siðferðilegum aðstæðum með því að segja sögur. Þannig verða einstök verk hluti af heild sem gefur þeim gildi. Kjaftshögg getur verið hetjudáð eða ofbeldisverk - hvort það er fer eftir samhengi og þetta samhengi er yfirleitt saga. Séu menn ósammála um hvernig meta beri verk snýst ágreiningurinn oftast um hvernig segja skuli söguna af því. Hæfileiki okkar til að fella gildisdóma er nátengdur hæfileikanum til að segja sögur og tengja atburði saman með frásögn. Ég
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.