Hugur - 01.06.2002, Page 59

Hugur - 01.06.2002, Page 59
Refir og broddgeltir, dýrlingur og snákur Hugur Refur á kynstur af ráðum, brottgöltur einungis eitt ráð. Eitt afar snjallt.33 Carnap var broddgöltur alla tíð. Wittgenstein var broddgöltur sem gerðist refur. Anscombe virðist við fyrstu sýn hljóta að vera refur eins og orðið hafði úr lærimeistaranum Wittgenstein. Ritsafn hennar er afar fjöl- breytilegt: þar eru snjallar ritgerðir um efni úr gamalli heimspeki, allt frá Parmenídesi til Humes,34 um trúarleg efni, um stjórnspeki og þá sérstaklega lýðræði (meirihlutaræði),35 og síðast en ekki sízt um orsakir og afleiðingar, orsakalögmál og löghyggju.36 Hún virðist ekki skeyta um að setja saman skipulegt hugmyndakerfí eða leita heildar- lausna á helztu gátum heimspekinnar. Quine var ekki svona fjöllyndur og reyndi ekki að vera það. Hans heimur var heimur náttúruvísinda nútímans og þeirrar rökfræði og stærðfræði sem þarf til að gera grein fyrir honum. Hann hefði aldrei farið að velta fyrir sér Parmenídesi eða Aristótelesi. Greinargerð hans fyrir þessum heimi sínum var kerfisbundin heildarmynd þar sem öðr- um heildarmyndum var vísað á á bug með því að sýna fram á að ein- hver brestur væri í undirstöðum þeirra. Brigðhyggjan um merkingu, sem síðar verður vikið að, var eitt helzta tæki hans til að leiða slíkan brest í ljós, og kom að því leyti í stað greinarmunarins á rökhæfing- um og raunhæfingum hjá Carnap. Quine var kerfishöfundur ekki síður en Carnap. Eða eins og Ed- 33 E. Diehl: Anthologia Lyrica Graeca I, 2ur útgáfa, Leipzig 1936, Archilochos #103. Þetta er talið brot vegna þess að eftir bragarhættinum (sem er trega- slagur) er síðari línan ófullgerð: það vantar hálfan fjórða braglið. Isaiah Berl- in gerði þetta vísubrot Arkílokkosar frægt í bók sinni The Hedgehog and the Fox, Weidenfeld and Nicholson, London 1953. Bókin fjallar um söguskoðun rússneska skáldsins Levs Tolstoj. 34 G.E.M Anscombe: Collected Philosophical Papers I: From Parmenides to Witt- genstein, Basil Blackwell, Oxford 1981. Sjá líka G.E.M. Anscombe og P.T. Geach: Three Philosophers: Aritstotle, Aquinas, Frege, Basil Blackwell, Oxford 1973. 35 „On the Frustration of the Majority by the Fulfilment of the Majority’s Will“ og „On the Source of the Authority of the State" í Collected Philosophical Pa- pers III: Ethics, Religion and Politics, Oxford 1981, 123-155. Sjá ennfremur Þorstein Gylfason: Tilraun um heiminn, Heimskringla 1992, fjórða kafla „Á meirihlutinn að ráða?“ 36 Sjá „Causality and Time“, þriðja hlutann í Collected Philosophical Papers II: Metaphysics and the Philosophy ofMind, 133-232, einkum fyrstu ritgerðina „Causality and Determination". 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.