Hugur - 01.06.2002, Blaðsíða 70

Hugur - 01.06.2002, Blaðsíða 70
Hugur Þorsteinn Gylfason Ein hugarleikfimi hans var að reyna að ráða í orð og setningar á málum sem hann kunni ekki. I Reykjavík sá hann hjá mér prófórk að tónleikaskrá fyrir Listahátíð í Reykjavík sem stóð yfir dagana sem þau hjónin voru hér. Þar voru þýðingar eftir mig, meðal annars á tveimur þýzkum kvæðum eftir Stefan George. Hann hvolfdi sér yfir þær og þýzka textann. Það var ekki af áhuga á kvæðunum, heldur vildi hann vita hvað hann gæti lært mikla íslenzku af þeim með því að styðjast við þýzkuna. Hann reyndi líka að skilja hjálparlaust hvert einasta skilti sem fyrir honum varð í Reykjavík, þar á meðal götu- nöfn. Sóleyjargata. „Gata“ er gate, „sól“ gæti verið „sol“ eins og í lat- ínu, en hvað þá um „eyjar“? Er það isles? Eða kannski öllu heldur ey- esl Og eru augu sólarinnar buttercups? Beautiful! Hann var líka upp- numinn af orðinu „rökhenda“ fyrir „syllogism“: „a stanza of reason- ing“.57 Eg hef sagt frá því áður58 að einhvern daginn sem Elísabet og Pétur bjuggu hjá mér í Reykjavík bar svo við að ég týndi umslagi. I því voru öll skjöl um íbúð sem ég var að reyna að kaupa. Þau hjónin lögðust á bæn, og báðu heilagan Antóníus af Padúa að finna fyrir mig umslagið. Það mun vera hans embætti í dýrlingaveldi heilagrar kirkju að finna týnda hluti. Umslagið fannst. Eg hafði lagt það frá mér við kassann í matvörubúð, og kona nokkur stungið því í ógáti niður í pokann sinn. Hún hringdi til mín um leið og það varð fyrir henni. Þau hjónin voru ekki í vafa um hverjum bæri að þakka það að umslagið lenti í pokan- um hjá þessari góðu konu, eða hitt að hún hringdi og lét vita af því. Sumarið eftir sagði ég Maijorie og Van þessa sögu, og Van hristi höf- uðið sem oftar yfir hindurvitnunum sem jafnvel afburðafólk í vísind- um og heimspeki ætti til að ánetjast. Marjorie hafði minni áhuga á því efni, og spurði mig heldur hvernig hefði farið um íbúðina. Keypti ég hana? Þegar ég játti því dró hún upp úr tösku sinni lítinn gylltan snák, afsteypu af forngrískum ormi í Boston Museum of Fine Arts. Hún gaf mér snákinn í nafni þeirra beggja, og Van lét þess getið að í Grikklandi hinu forna hefðu svona snákar verið hafðir til að tryggja 57 Eftir að Þrætubókarkorn okkar Péturs Geach kom út var ég í heimsókn hjá Van á skrifstofu hans á Harvard. Hann hafði lagt svolítið efni til kversins. Eg spurði hann allt í einu hvað hann hefði kallað „quantifier“ á ensku ef hann hefði mátt ráða orðinu. I Þrætubókarkorni heitir quantifier „magnari". Van hikaði andartak, og í þeim svifum leit Robert Nozick inn á skrifstofuna. Van spurði hann, og hann svaraði að bragði: ,Amplifier.“ 58 Þorsteinn Gylfason: „Vatn í poka“ í Skírni 165, haust 1991, 459. 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.