Hugur - 01.06.2002, Page 133
Aðhylltist Magnús Stephensen náttúrurétt?
Hugur
Jeremy Bentham, faðir svonefndrar nytjastefnu sem hann reisti
meðal annars á kenningum Helvetiusar og Humes, var svarinn fjand-
maður náttúruréttar. Hann kallaði hugmyndina um náttúrleg rétt-
indi í mannréttindaskránni frönsku „endaleysu á stultum11.29 Þrátt
fyrir þennan dóm gerðu frönsku byltingarmennirnir Bentham að
heiðursborgara hins nýja lýðveldis síns árið 1792. Hann var með af-
brigðum róttækur og frjálslyndur maður og þess vegna þeim að skapi.
Að baki fordæmingar Benthams býr sú hugsun að réttindi séu
óhugsandi án settra laga. Lög og aðeins lög megna að skapa rétt-
indi.30 Náttúruréttindi eru háskalegar ímyndanir. Lög ber að setja í
ljósi nytjasjónarmiða, til almenningsheilla. Því fylgir að engin rétt-
indi eru fyrirfram tryggð. En sum réttindi - eins og málfrelsi eða
kosningarétt - getur verið sjálfsagt að tryggja í lögum í Ijósi al-
mannaheillar. Nytjastefnumaðurinn John Stuart Mill, guðsonur og
lærisveinn Benthams, var frægasti talsmaður málfrelsis og kosninga-
réttar á 19du öld.31
Lítum sem snöggvast á svonefnd félagsleg mannréttindi. Um þess-
ar mundir er baráttumál í heiminum að slík réttindi - réttur til lífs-
gæða eins og matar, líknar og menntunar - hljóti fyllstu viðurkenn-
ingu sem mannréttindi,32 eins og þau eru talin vera í mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 og síðan 1995 í stjórnarskrá
Islands að einhverju leyti. En í flestum löndum heims eru engin lög í
þessa veru og hafa aldrei verið. Frá sjónarhóli Benthams eru þessi
svonefndu mannréttindi tálsýnir.
Félagslegu mannréttindin - einhver lágmarksréttur til matar, líkn-
ar og menntunar - eru bersýnilega mannréttindi eftir hinum stranga
skilningi Harts á því orði. Ef við höfum þau þá höfum við þau sem
menn. Og þau eru að sjálfsögðu ekki mannasetningar. Þau varða
náttúrlegar frumþarfir einstaklings af dýrategundinni hinn viti borni
maður.
En nú er komið að broddinum. I rökræðum um þessi réttindi á okk-
ar dögum fórum við ekki með þessa sjálfsögðu hluti sem neitt höfuð-
atriði í málinu. Við hugsum flest ekki um þetta efni út frá náttúru-
rétti - hjá okkur er hann dáðlaus og máttvana - heldur eins og nytja-
29 Jeremy Bentham: „Anarchical Fallacies" hjá Jeremy Waldron: Nonsense Up-
on Stilts: Bentham, Burke and Marx on the Rights ofMan, 53.
30 Sbr. „The Politics of Human Rights" í The Ecomomist 18da ágúst 2001, 9 (rit-
stjórnargrein).
31 John Stuart Mill: Frelsið, Hið íslenzka bókmenntafélag, Reykjavík 1970.
32 Sbr. til dæmis viðtal við Ragnar Aðalsteinsson í Fréttablaðinu 27da ágúst
2001.
131