Morgunn - 01.12.1921, Qupperneq 28
148
MOK6UNN
nærri neinu lagi, t. d. þegar raddirnar hafa komið með
vitneskju, sem miðillinn gat ekki hafa fengið. En að sjálf-
sögðu er ein8 um þetta fyrirbrigði og öll önnur, sem talin
eru stafa frá öðrum heimi, að mikils er um það vert, að
mótbárurnar verði kveðnar niður með sem rambyggileg-
ustum sönnunum.
Maður heitir George Garscadden, og er sagður vel
þektur meðal kaupsýslumanna í Glasgow. Hann heflr
um mörg ár fengist víð rannsókn dularfullra fyrirbrigða
í frÍ8tundum sínum. Um mörg ár hefir hann um það
hugsað, hvort ekki væri unt að létta eitthvað undir með
þessum röddum með öðrum áhöldum en lúðrunum, til þess að
flrra8t allar svika-grunsemdir, og sérstaklega hafði honum
komið til hugar að nota til þess talsímann með einhverjum
hætti Fyrir eitthvað 9 mánuðum kyntist hann manni,
sem heitir William McCreadie, handiðnamanni, sem átti
heima í úthverfum Glasgowborgar. Þessi maður hafði
um tvö ár gert-tilraunir með tveim sonum sínum, Willi-
am og Andrew, og komist að raun um, að þeir voru allir
gæddir nokkurum miðilsgáfum, feðgarnir. Meðal þeiira
fyrirbrigða, sem þeir höfðu fengið, voru þessar raddir,
sem áður hefur verið á minst. Það var fyrir miðilskraft
yngri sonarins, Andrew, að raddirnar komu.
Nú þótti Garscadden bera vel í veiði, ekki sízt. þar
sem eldri sonurinn bar góð kensl á símalagningu Svo
að þessir menn lögðu saraan vit sitt og fundu upp áhald
það, sem getið er um í upphafi þessarar greinar. En
William Joffrey heitir maðurinn, sem bjó áhaldið til
Það er kassi úr tré, vandlega feidur, 36X22XÍ9V2
þuml. Honum er skift i tvö hólf, með láréttu skilrúmi,
sem er hér um bil 6 þuml. fyrir neðan lokið. Iíurð er
á annari hllðinni. JRafvirki er í neðra hólfinu og talfæri,
og úr því liggja þræðir upp í efra hólfið og út úr því,
er heyrnartól á enduin þráðanna. Þegar ekki er verið
að nota áhaldíð, eru heyrnartólin geymd í efra hólfinu.
Áhaldið er ætlaö 6 mönnum, og hver þeirra hefir tvö