Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 50
170
MOEöUNN
að fyrír það sé alt leggjandi í sölurnar. Þessi kenning
lifir enn í fullum blóma, já í framþróun. Þrátt fyrir hið
mikla öfugsteymi, svo sem heimsstytjaldar-öfgarnar, sem
eru verk fáeinna blindra valdhafa, þá streyma þó enn
margir að austan og vestan »til borðs með Abraham,
Isak og Jakob í ríki himnanna*. En enn er meira rúm,
enn er veizlusalurinn ekki alskipaður, enn erum vér
of fáir.
Og 19 aldir! Er það ekki nægur próftími fyrir sann-
leiksgildi þesBarar kenningar kriatindómsins um eilíft líf?
Ættum vér að þurfa nokkra nýja opinberun, nýjar stefn-
ur til að leiða 03S undir hið gamla sannleiksmerki, er
kirkja Krists hefir á lofti haldið allan þennan langa tíma.
Þekkir nokkur ykkar, þekkir sagan, þekkir reynslan
nokkra enn lifandi 19 alda lygi, já, 19 alda lygi í fram-
för? Nei, slíkt er alt dægurflugur, útdauðar eftir stundar-
lif, hvað sem reynt er þeim til bjargar.
Mér finst því engin ástæða fyrir kirkju Krists til að
vera hrædda um, að hinar nýju stefnur muni rífa horn-
steininn undan henni, upprisu og eilífa llfs kenninguna;
mér finst kirkjunni ætti í þessum atriðum að vera, ef
nokkuð er, fremur styrkur að stefnunni nýju, að minsta
kosti enn sem komið er. Mér finst því undarlegt, að
sumir kirkjunnar menn, og svo aftur Bumir menn hinnar
nýju stefnu, virðast skoða livorir aðra sem andstæðinga,
já, jafnvel fjandmenn, og eru að hnýfla hver annan, brígzla
hver öðrum, og draga jafnvel dár hver að öðrum. Oskapa
fjarstæða finst mér þetta. Mér finst, meðan ekki ber meira
á milli en enn virðist bera, þá ætti kirkjan og hinar nýju
stefnur að sjá að minsta kosti hver aðra í friði. Halda
stóryrðum niðri á báðar hliðar. Eg þekki lítið hinar nýju
stefnur, eins og eg hefi þegar sagt, nema af lítilfjörlegum
lestri um þær og afspurn, og er því enginn áhangandi
þeirra, en um leið enginh óvinur. Eg er einn af þeim,
sem með Gamalíel hinum spaka Farisea á postulatíman-
um vil, gagnvart nýjum andans stefnum, ráða til hins
I