Morgunn - 01.12.1921, Síða 96
216
MOHGMJNN
Þegar eg hefi metið allar sannanirnar, heíir árangur-
inn hjá mér orðið fullvissa um að til eru áreiðanleg fyrir-
brigði, sem koma frá ósýnilegum vitsmunaverum, og birta
það, sem eg með lotningu nefni guðdómlegan sannleika.
Til þess að láta í ljós, hvern árangur þessar margra ára
rannsóknir hafa haft fyrir sjálfan mig, vil eg leyfa mér
að nota orð Gerald Massey, með því að eg finn að þetta
skáld og djúphyggjumaður segir það betur en mér væri
unt. Spurningunni um það, hvaða áhrif þessi nýja, en
þó gamla trú hefði haft á hann, svarar hann þannig:
>Spíritisminn hefir víkkað svo andlegan sjóndeildar-
hring minn — eins og margra annara — og veitt mér
það æðra útsýni; breytt trú í staðreyndir með svo öflug-
um hætti, að héðan af verð eg að likja líönu án hans við
sigling á skipi, þar sem öll lúkugöt eru vandlega byrgð
og menn verða að hýrast sem fangar undir þiljum við
kertistýru; en síðan er þeim leyft að ganga upp á þilfar-
ið fyrsta sinn stjörnubjarta góðviðrisnótt, til þess að virða
fyrir sér guðlega dýrð hins leiftrandi stjörnuhers*.
Að meiri hluti lækna trúi ekki á ódauðleik sálarinn-
ar, er fjarri öllum aanni, að minsta kosti ætla eg svo
vera um ameriska lækna. Eg hefi um mörg ár haft af-
skifti af fjölmörgum læknum okkar stóra lands, og að
eins fundið fáa, sem þorað hafa að segja: »Alt er búið,
þegar við erum dauðir«.
Hins vegar þekki eg marga, sem hafa látið í Ijós við
mig trú sína eða öllu fremur fullvissu um áframhald lífs-
ins, — menn sem hafa þorað að kannast við þá skoðun
sína á prenti. — Fyrir skömmu hefir einn af okkar fræg-
ustu skurðlæknum, major W. W. Keen, dr. med., dr. phil.
og fyrverandi prófessor í skurðlæknisfræði við Jefferson-
læknaskólann i Philadelphia, gert mér þann heiður að
senda mér rit sitt: »Um sjö tímabil læknisfræðinnar*. í
ritl þessu skýrir hann frá framförum læknisfræðinnar nú
i Illll 70 ár, fl’á 1846 — þegar W. T. G. Morton uppgötv-
aði deyfingarmeðalið við skurðlækningum — til 1918.