Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 27
MORGUNN
21
um liggjandi, og þessi hefir ávalt verið skoðun góðra ís-
lendinga. Eru skoðanir Hallesbys aðrar í þessu efni?
Prófessor Hallesby telur íslendinga einhverja lakast
stadda þjóð í Norðurálfunni, að því er til kristindóms tek-
ur. Hann kveinkar sér ekki við að halda þessu fram, þó
að vitað sé, að stórþjóð, eins og Rússar, stefna að því op-
inberlega, að útrýma öllum kristindómi úr landinu, og að
taka allar kirkjur landsins til annara afnota en að flytja
í þeim guðsþjónustur. Þetta er Ijós vottur um sannleiks-
ást þessa kristna Austmanns.
Það er talið sameiginlegt öllum kristnum mönnum, að
þeir trúi því sem guðspjöllin hafa eftir Jesú frá Nazaret,
og efa ekki, að skoðanir hans séu réttar í einu og öllu. —
Jesús benti samtíð sinni á, að þegar farísear báðust fyrir
á almannafæri, svo að lýðurinn gæti dáðst að bænrækni
þeirra, þá hefðu þeir þegar tekið út laun sín fyrir bæn-
ræknina. Sama sagði hann um þessa mentamenn, Gyðinga,
er þeir afmynduðu ásjónur sínar meðan þeir föstuðu, svo
að aðrir gætu séð þjáning þeirra, vegna föstunnar, þá
hefðu þeir einnig tekið út laun sín fyrir föstuna. — Þá
varaði Jesús mjög ákveðið við að dæma aðra, og hann full-
yrti, án allra undantekninga, að ekki nægði að segja:
„herra, herra“ við föður sinn á himnum, til að komast í
sælustað himnanna. — Þetta er athyglisvert fyrir alla,
sem telja sig kristna, að prófessor Hallesby meðtöldum.
Eg hverf frá þessu, en vík með fáum orðum að þekk-
ingu minni á íslendingum. — Eg hefi ferðast fram og aft-
ur um sveitir landsins um margra ára skeið, oftast 1—2
hundruð daga á ári, og á þessum ferðum mínum hefi eg
kynst fjölmörgum þeirra, sem búa í sveitunum. Helztu
næðisstundirnar eru kveldin, þegar afstaðið erfiði dagsins
laðar menn að kyrð næturinnar. Þá er það oft, að instu
áhugamálin ber á góma. Hefi eg þá oft mætt hlýrri, inni-
legri, barnslegri guðstrú, og það jafnvel, þar sem mig
varði sízt. Margt af þessu milda, trúrækna fólki talar
mjög sjaldan um trú sína, eins og það væri feimið við að