Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 44
38
MOEGUNN
þjónustu kærleikans. Til þess fæddist hann, lifði og dó
hann, að sýna heiminum endurskin hins guðlega kærleika,
sem stendur að baki tilverunnar, og kærleikans vegna er
það, að hann, hinn eini frjálsi andi með fullkomnu valdi
yfir líkama sínum, sálu sinni og hinum huldu öflum, vík-
ur ekki af hólmi fyrir kvaladauðanum á krossi. Hefði hann
gert það og hugsað um það á úrslitastundinni að bjarga
lífi sínu, þá hefði hann ekki verið frjáls, ekki frjáls und-
an eigingirninni, sjálfshyggjunni.
En upp á Golgata lá leið hans, öðruvísi gátu endalok-
in ekki orðið og sem konungur kærleikans, með útbreidd-
an, blóðugan faðminn og kærleiksbæn á vörum fyrir kvöl-
urum sínum og hatursmönnum, kveður hinn stóri, frjálsi
andi þá jörð, sem bannfærði hann; hann blessaði hana,
hún bölvaði honum, því að
„haturssæng var syni Drottins búin,
á svívirðing hann hvíldi beinin lúin“.
Og kærleika síns vegna hefir harmkvælamaðurinn á
krossinum verið elskaður heitari elsku af miljónum hjartna
en nokkur annar, kærleika síns vegna hefir Kristur á
krossinum orðið endurlausnari þeirra, sem logandi af
elsku til hans náðu dulrænu lífssamfélagi við hann, kær-
leika síns vegna hefir friðflytjandinn á krossinum flutt
heilagan frið óteljandi sálum, sem báru þunga syndarinn-
ar og brunnu í hreinsunareldi sektartilfinningarinnar og
kærleika síns vegna hefir hetjan á krossinum flutt ómet-
anlegan styrk mörgu hugföllnu hjarta.
0g um leið og vér sjáum í frelsi hans það háleitasta
líf, sem á jörðunni hefir verið lifað, minnumst vér þess á
minningardegi dauða hans, að hann dó til þess að geta
orðið endurlausnari vor frá niðurlægjandi ánauð og ósjálf-
stæði, því að „til frelsis frelsaði Kristur oss“.
„Jesús, þér sé þakkargjörð
þúsundföld á himni og jörð“.
Amen.