Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 33
MORGUNN
27
óskoðað, væru fastar reglur, sem útvarpsráð hefði sett um
flutning- deilumála. Þetta myndi nú verða leiðrétt.
Þá kvað hann það ómakleg ummæli hjá Gísla Sveins-
syni sýslumanni, að próf. Einari H. Kvaran hefði ekki
farið fram í frjálslyndi síðustu tuttugu árin.
Próf. Kvaran væri manna frjálslyndastur og hógvær-
astur í boðun sinni, og myndi hann eiga meiri ítök í hug-
um landsmanna en allur þorri prestanna. (Heyr! Og lófa-
tak um allan salinn).
Þakkaði útvarpsstjóri síðan Einari H. Kvaran fyrir
erindið og fyrir að hafa vakið umræður um þetta mál, sem
öðrum hafi þó staðið nær að gera.
Síðan tók til máls hr. bóksali Snæbjörn Jónsson og
bar fram eftirfarandi tillögu:
„Fjölmennur fundur, haldinn í Nýja Bíó í Reykjavík,
sunnudaginn 14. febrúar 1937, lætur í Ijósi óánægju sína
yfir því, að hik skuli hafa á því orðið, að prófessor Einar
H. Kvaran fengi ritskoðunarlaust að flytja erindi í ríkis-
útvarpinu, og væntir þess fastlega, að honum verði bráð-
lega gefinn kostur á að halda þar fyrirlestur þann, sem
um var að ræða“.
Jafnframt vildi hann láta getið atvikanna að því, er
grein hans til andmæla gegn Hallesby var úthýst í Vísi.
Kvaðst ræðumaður hafa farið með greinina til Axels
Thorsteinson og hefði hann tekið við greininni. Síðar hefði
svo annar starfsmaður sama blaðs hringt til sín og tjáð
sér, að greinin kæmi ekki (bannað greinina). — Gat hann
þessa, svo að öllum mætti vera Ijóst, að Axel Thorsteinsson
væri ekki valdur að því, að greinin var bönnuð.
Að lokum átaldi Snæbjörn Jónsson það, að próf. Ein-
uri H. Kvaran hefði verið bægt frá útvarpinu.
Þar sem nú var útrunninn sá tími er húsið var heim-
ilt til af nota, var umræðum lokið og gengið til atkvæða:
Var fyrri tillagan samþykt með öllum greiddum at-
kvæðum gegn 2, en sú síðari var samþykt í einu hljóði.
Fundi slitið.