Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 15
MORGUNN
9
og ákveðnasta kristindóm. Síra Haraldur færði honum
bókina að gjöf, og sætti aldrei ámælum frá hans hálfu í
þessu lífi. En eg geri ráð fyrir að danski presturinn hafi
aldrei lesið bókina, því að vissara þótti honum, sem dönsk-
um rétttrúnaðar presti, að sletta til síra Haralds eftir
andlát hans með mjög svo villandi og ósönnum ummælum.
Eg ætla ekki að fjölyrða um prédikanir síra Haralds
Níelssonar hér. Það yrði alt of langt mál, ef ætti að fara
að gera þeim nákvæm skil, svo þrungnar sem þær eru af
margbreytilegum hugsunum. Allir, sem hlustuðu á hann
að staðaldri í kirkjunni eða hafa lesið prédikanir hans,
vita, hvernig hann útlistaði hinar margvíslegu hliðar krist-
innar kenningar, en einkum þær, sem valda örðugleikum
í efagjörnum sálum. Hann gerði það af hinni djúpsettustu
ást og lotningu fyrir guðdóminum, af frábærum lærdómi
og víðsýni, af hinum skarpasta skilningi á sálum mann-
anna og erfiðustu viðfangsefnum mannsandans á trúar-
sviðinu, af þeim sannfæringarhita, sem alt yljaði, og af
óþrotlegri mælsku. Þetta sambland af frábærum eiginleik-
um og hæfileikum held eg, að sé alveg einstætt í íslenzkri
prédikunarlist. Það þröngvaði sér inn í huga tilheyrend-
anna, og endurminningin um það getur aldrei þaðan horf-
ið. Þetta er maðurinn, sem prófessor Hallesby segir Norð-
mönnum, að hafi komið íslenzkri kristni á heljarþrömina.
Þegar síra Haraldur Níelsson féll frá, var þjóðarsorg
um alt landið. Um það get eg borið sem ritstjóri „Morg-
uns“, því að harmakveinin út af hinum mikla missi bárust
hvaðanæfa þessu riti, sem síra Haraldur hafði gert svo
mikið fyrir og lagt svo mikla rækt við. Menn fundu svo
sárt til þess, að þeir höfðu mist sinn ástfólgnasta foringja
og leiðsögumann, og að nú var einu mikilmenninu, einum
snillingnum og einum guðsmanninum færra á þessu fá-
menna landi. Eg minnist nú sérstaklega tveggja minning-
arljóða, sem ort voru eftir hann. Þau eru dæmi þess, hvern-
ig boðskapur síra Haralds Níelssonar verkaði á gáfaða,
andlega sinnaða menn með þjóð vorri, og þau eru áreið-