Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 120
114
MORGUNN
æðra stig tilverunnar, gefi okkur þá sýn og þann skilning
yfir lögmál og vegu lífsins, að við sjáum, að þrautir og
erfiði, sem stundum eru svo fylgispakir förunautar mann-
anna í jarðlífinu, séu einungis eins og skammvinn, hverf-
andi ský á himinhvolfi óyfirsjáanlegrar þróunarleiðar,
sem kynslóðunum er ætlað eftir.
Sennilega er engin sú þekking, er fallið hefir mann-
kyninu í skaut jafn fær um það, að gera mennina betri,
víðsýnni, umburðariyndari og kærleiksfyllri en einmitt
ódauðleikasannindin og sú vitneskja, er með þeim hef-
ir fengist um þróun lífsins, stig af stigi, eftir það, að
mennirnir hafa flutzt út yfir gröf og dauða.
Og líklega er fátt annað, sem fram við þá kemur,
jafn vel fallið til þess að breyta mörgum þeirra — eins
og ameríska rithöfundinum, er getið hefir verið í fyrri
hluta þessa erindis — úr svartsýnum bölhyggjumönnum
í þróttmikla bjartsýnismenn með þroskaleið hins ævar-
andi lífs framundan.
Hæstaréttardómurinn
í lækningamálinu.
Ár 1937, föstudaginn 14. maí var í hæstarétti í mál-
inu nr. 52/1936
Réttvísin og valdstjórnin gegn Óskari
Valdimar Eggertssyni, Sigurlaugu Sig-
urbjörnsdóttur, Guðrúnu Guðmunds-
dóttur og Sessilíusi Sæmundssyni upp-
kveðinn svohljóðandi
DÓMUR:
Verknaður sá, sem hin ákærðu Sessilíus Sæmunds-
son og Guðrún Guðmundsdóttir eru sökuð um í þessu