Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 89
MORGUNN
83
ana, sem eg hafði verið hjá, eg hélt þeir hefðu leikið á
mig. Nú keypti eg mér 2 bækur „Á landamærum annars
heims“ eftir A. Findlay, og „Framhaldslíf og nútímaþekk-
ing“ eftir síra Jakob Jónsson. Eg las þær af mikilli ná-
kvæmni. Síðan hóf eg tilraunir.
[Nú kemur í ritgjörð höf. löng skýrsla um tilraunir
hans á heimili sínu. Hún er of löng til þess að eg geti flutt
hana hér alla. Hann var svo heppinn, að fósturdóttir hans,
sem á heimilinu var, reyndist góður miðill. Hann sann-
færðist algjörlega af þessum heimilistilraunum, enda kom
þar fram margt merkilegt og sannfærandi].
Mér hefir verið skýrt frá því hinumegin frá, að að
þessu sambandi mínu og konu minnar starfi fjölda margir
framliðnir menn. Kona mín hefir sagt mér nöfn þeirra
margra. Suma þekki eg, en suma þekki eg ekki. Enda
kveðst hún sjálf ekki vita nöfn þeirra allra. Hún segir, að
það verði að hafa mjög sterkan vörð um okkur á meðan
á tilraunum standi, því það séu svo margir sem vilji kom-
ast að. Mér hefir skilist, að þeir sem taka virkan þátt í
tilraununum, sitji eða standi (eg veit ekki hvort heldur)
í hring ásamt mér og miðlinum. Utan um þennan hring
sé svo annar, til varnar því, að alt of ákafir framliðnir
menn geti eyðilagt sambandið. Sá sem er fyrir þeirri varð-
sveit er framliðinn faðir miðilsins og bróðir hennar. Ann-
ars langar mig til að segja yður sögu af þessum bróður.
2. janúar í vetur fékk eg fyrst að vita um þessa varð-
sveit og nöfn ýmsra, er í henni störfuðu. Eg ætla að segja
yður það orðrétt; hún segir: „Þú getur ímyndað þér, elsk-
an mín, að mér er hjálpað til þess að hafa samband við
þig. Guðm. Sigurðsson (faðir miðilsins) er minn bezti
hjálparmaður. Og svo hann stóri bróðir hennar. Stóri bróð-
ir, segi eg, hún á engan bróður hjá ykkur. „Jú, hún á
stóran bróður hjá okkur, og hann heitir Kristján“. Jæja,
segi eg, mér er ókunnugt um það. Þetta er nú rétt samt,
segir hún. — Þegar fundi var slitið, fer eg náttúrlega að
spyrja miðilinn um þennan bróður. Hún segist ekki vita
6*