Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 132
126
MORGUNN
gleymt þeirri áminning, að dæma ekki. I því sambandi
virðist ekki ástæðulaust að benda á ummæli, sem prent-
uð eru á öðrum stað í þessu hefti og eru eftir mann, sem
hefir lagt mikla stund á að rannsaka spiritismann, þar
sem aftur á móti Skovgaard-Petersen gerði það ekki.
Umsögn hans er þessi: „Tvær staðreyndir eru óbifan-
legar: önnur er sú, að í rannsóknum mínum hefi eg ekki
orðið var við neitt, hvernig sem eg reyndi á ímyndunar-
aflið, sem eg gæti lagt svo út, að það væri gagnstætt
kristinni trú; og í öðru lagi hefi eg fundið í mörgum
skeytum, sem telja sig koma frá heimi framliðinna
manna, eins mikla lotningu fyrir Kristi, eins mikla holl-
ustu við hans ríki, eins mikla löngun til að efla vald hans
heilaga anda í hjörtum og lífi mannanna, eins og eg hefi
fundið í nútíðarkirkjunni þar sem bezt lætur“. — Trúar-
skoðanir og guðrækni þeirra miljóna, sem aðhyllast
spíritismann, eru auðvitað mismunandi, og ekkert vit í
að kveða upp yfir þeim öllum sama dóminn. En svo er
líka ástatt í kristinni kirkju.
Þeir hafa þann sið, að hella á menn ritn-
ingargreinum því til sönnunar, að spírit-
isminn sé bannaður í biblíunni. Sérstak-
lega beita þeir fyrir sig 10. og 11. versi i 5. bók Móse;
þar stendur þetta: „Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá
er láti son sinn eða dóttur ganga gegn um eldinn, eða sá
er fari með galdur eða spár eða fjölkyngi, eða töfra-
maður, eða gjörningamaður eða særingamaður eða spá-
sagnarmaður, eða sá er l.eiti frétta af framliðnum. Því
að hver sá er slíkt gjörir er Jahve andstyggilegur". Hér
er verið að vara Gyðinga við því að taka upp dulræna
siði þeirra heiðnu þjóða, sem bygðu Kanaans.land á und-
an þeim; en „spámann mun Jahve, guð þinn, upp vekja
meðal þín af bræðrum þínum; á hann skuluð þér hlýða“.
Þeir áttu að hafa sínar dulrænu athafnir og iðkanir út
af fyrir sig. Eins og allir heilvita menn ættu að geta séð,
kemur ekki til nokkurra mála að heimfæra aðra liði
Blbliu-
vargarnir.