Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 46
40
MORGUNN
stórkostlegur bunki af vitnisburðum um það, hve mikið
gott hefir verið gert með þessum hætti. Því miður hafa
fá af þessum félögum búið til neitt yfirlit.
Lækning í fjarlægð, eins og reyndar allar andlegar
lækningar, ættu menn ekki að hugsa sér að séu í neinni
andstöðu við venjulegar lækningar, heldur fremur sem
viðbót við þær. Eins og einn framliðinn maður hefir sagt
við okkur: „Læknar eru engin tilviljun. Þeir eru sálir,
sem koma inn í þetta líf til þess að veita sjúkum mönnum
þjónustu sína“. I öllum tegundum lækninga verða sam-
kepni hugmyndirnar að víkja fyrir hinum göfugri hugs-
unum um samvinnu.
Hjá okkur, í Spiritista Sambandi Lundúna, er safnað
skýrslum um hvern sjúkling, og sagt frá því, hvernig heil-
brigðinni miðar áfram. Svo að við getum sagt frá árangr-
ingum af tilraunum okkar. Þetta lækninga starf fyrir frá-
verandi sjúklinga hóf Spiritista Sambandið í nóvember
1934, og nálega eitt þúsund manna frá mörgum hlutum
veraldarinnar hafa leitað til okkar um hjálp.
Hvernig getur það gerst, að menn, sem við höfum
aldrei séð og þekkjum að eins af bréfi, fái lækningahjálp
frá flokki manna, sem eru nægilega áhugasamir og sam-
úðarfullir til þess að verja dálitlu af tíma sínum til þess
að biðja fyrir fráverandi sjúklingum?
Mörg atriði koma hér til greina. En aðalatriðið er
það, að allur lækningakraftur er hið innra með oss. Eng-
inn lækningamaður getur annað gert, hvort sem lækninga-
tilraunin gerist að sjúklingnum viðstöddum eða fráver-
andi, en það, að flytja til lífsþróttinn, örfa starfsemi hins
lífgefandi afls, sem með sjúklingnum býr.
Andrew Jackson Davis sagði, að að eins væri til einn
sjúkdómur, en mörg sjúkdóms einkenni. Hann hélt því
fram, að sjúkdómur stafaði af afskiftum af, eða höftum
á hinum andlegu öflum, sem færu um líkamann. Alt sem
hamlaði rás þessara afla orsakaði sjúkdóm, sem kæmi í
ljós samkvæmt þeim skilyrðum, sem fyrir hendi væru.