Vaki - 01.09.1952, Page 46

Vaki - 01.09.1952, Page 46
DAGBÓKARBROT POUL LA COUR Poul la Cour (fæddur 1902) er i fremstu röð núlifandi danskra skálda. Hann kom fram sem skáld skömmu eftir 1920, en vakti ekki mikla athygli fyrr en 1927 með ljóða- bókinni Den galliske Sommer. Síðan hefur hann gefið út fjölda bóka, aðaliega ljóðabæk- ur, en einnig tvær skáldsögur. Fragmenter af en Dagbog (1948) er sennilega merkasta verk hans hingað til. Dagbókarbrotin voru íyrst birt í tímaritinu Heretica, sem er mál- gagn nokkurra ungra skálda og rithöíunda. Ýmsir í þeim hópi hafa síðar hallazt að dul- speki og metafysik, en deilt á rationalisma og náttúruvísindi. Þegar þetta kom í ljós, hætti Paul la Cour samvinnu við tímaritið. Bók hans hefur haft mikla þýðingu fyrir ung dönsk skáld, enda má telja hana einhverja beztu greinargerð fyrir nútímaskáldskap, sem gerð hefur verið. Höfundur segir m. a. i formála bókarinnar: Þessar athugasemdir „eru engin tilraun til að semja fullkomna ars poetica, heldur árangur af hugsunum og drögum á víð og dreif, þá er mér varð nauðsynlegt að réttlæta líf, sem er lifað til að skapa og staðfesta skáldlegan veruleika.“ Og: ,,Á þessum dimmu timum hafa skáldin þörf á að leggja niður fyrir sjálfum sér, að því fer fjarri að skáldskapariðjan sé flótti, þvert á móti á hún háleitu, ómissandi hlutverki að gegna i innsta eðli tilverunnar, og hin raun- verulegu svik væru að fella þennan varnargarð gegn afskræmingu manneðlisins; hann virðist að vísu veikbyggður, en er þó öflugur." Á undan orðinu Nei, ég get aldrei hœtt að leita, ég verð aldrei dugandi maður. Því eldri sem ég verð, því reikulli verð ég, því víðar leita ég, þreifa mig áfram frá hugmynd til hug- myndar. Ekkert þeirra forma, sem ég finn, fullnœgir mér framar. Þau skortir innri sann- leik, sem þau áttu áður, en ég gat aldrei tileinkað mér að fullu. Það, sem liggur mér á tungu, getur ekki öðlazt líf innan þeirra, eini mœlikvarðinn, sem við þekkjum. Er það af því ég lœt mig dreyma um annarskonar skáldskap, skáldskap, sem ekki þarfnast neinna forma og gengur nakinn og varnarlaus út í heiminn, barnslegan skáldskap, sem ekki þvaðrar af metnaðargirni um að brjóta hinar hrœðilegu hugsanavenjur, sem sundra okkur, af því hann er fœddur fyrir þeirra tíð, fœddur fyrir tíð angistarinnar. Styrkasta vopn okkar gegn henni. E’g hörfa frá tilrauninni, en samt dregur hún mig að sér. Það er þetta sem René Char meinar með heitinu á nýjasta ljóðasafni sínu Le Poeme pulvérisé að við verð- um kannski í dag að mola kvœðið mélinu smœrra til að frelsa skáldskapinn. Ekkert á sér stœrri köllun en hann. Hin pólitísku form eru aðeins ílát, sem hann á að fylla lífi og lífssýnum. Aðeins skáldskapurinn getur frelsað manninn og heiminn, hvers virði er þá kvœði mitt. Enska skáldið Day Lewis sagði nýlega við mig, að okkar öld skapaði aðeins minni háttar Ijóð, vegna þess að hún leitar kjarnans, hún þorir ekki að fylla ljóð sín með lýsingum, epískum köflum og stígandi hugsanagangi. Hún leitar hinnar fögru ringulreiðar í stað nýrrar reglu, draumurinn um hreinan skáldskap er henni svo mik- ils virði, að henni verða ekki á munni mikil kvœði, sem mennirnir geta lifað í, held- ur öskur. TlMARITIÐ VAKI 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.