Vaki - 01.09.1952, Side 70

Vaki - 01.09.1952, Side 70
er laus við þreytuna, sem veik óttatilfinningin vekur, þegar gengið er á snjó. Siggi tekur vel á móti honum og býður honum strax upp í herbergi til sín. Heyrðu, viltu ekki sopa. Ég gat stolið smálögg af skota í gær. Takk, en ekki mikið; ekki gott að drekka of margar tegundir. Er hann ekki dásamlegur á bragðið? spyr Siggi. Excellent, svarar Gestur og smjattar á hnossgætinu. Við skulum klára þetta litla, sem er í flöskunni. Gestur jánkar því og lítur í kringum sig í herberginu. Gamlar fjölskyldu- myndir eiga illa við ljósa veggina. Grenigreinum hefur verið tyllt á þær og ein- hver hefur nýlega brennt greni í öskubakkanum. Ilmurinn blandast vínlyktinni, þægilegur og örvandi. Borðaðirðu mikið? spyr Siggi. Já. Allt í lagi, við drekkum út. Mr. Bumbo býður, þeim gömlu var boðið í veizlu. Þeir ljúka úr glösunum og ganga af stað. Gestur, værirðu ekki til í að reyna þriggja eða fjögurra daga túr, afréttar- fyllirí er það bezta sem til er? Kannski, ekki splæsir Mr. Bumbo alltaf? Nei, sá púki tímir því ekki, það er alltaf hægt að finna einhverja til að splæsa í flösku. Það drekka allir sem geta. Það væri gaman að reyna það. Ég hef aldrei drukkið nema kvöld og kvöla. Fine, þá gerum við það. Einar Gríms fór ekki heim og drekkur víst áreið- anlega, hann hefur að minnsta kosti flattið til þess. Þá reynum við hann á morgun. o o ° Mr. Bumbo, en svo er Geir kallaður í sínum hópi, opnar gleiðbrosandi fyrir þeim dyrnar og býður þeim inn. Hann er rauður í framan og augun gljá. Hann er aðeins í skyrtu, ermastuttri og feitir handleggirnir titrandi af spiki falla slytt- islega niður með síðunum. Gerið svo vel, strákar, kokkteill, fínasti spiritus consentratus og amerískur ávaxtasafi, allt eins og þið viljið, ef þið bara hagið ykkur eins og fínir menn. í þessu herbergi er Mr. Bumbo kóngur. Allt er á rúi og stúi. Bækur, blöð og allavega skræpótt tímarit. Meðfram einum veggnum er stór og breiður sófi, sem hvílir þennan kjötmikla skrokk og alit sem honum getur fylgt. Við enda herberg- isins er stórt borð og innan um allt draslið er stórt safn af jazzplötum. Þar er líka að finna volduga bók, er inniheldur einkasafn af tvíræðum, myndskreyttum skrítlum. Löngum undi Gestur sér við þessa bók en er nú orðinn leiður á henni, finnst hún gróf og leiðinleg. Enda eru myndirnar gerðar fyrir ónáttúrlega ungl- inga og gamia piparkarla, búna að glata allri von. Hann hefur meiri áhuga fyrir þessum fáu plötum af spirituals og blues, sem Mr. Bumbo á. Einn hefur verið settur á fóninn: Go down, Moses. síðan dapur, beiskjusár söngur: They nailed Him on the cross. Allir þrír raula þeir viðlagið og drekka. Döpur tónlist heldur áfram: Deep river. Þeir drekka stíft, samtölin ganga stirðlega, því að menn eru ekki komnir í það skap, sem beðið er eftir. Þessvegna er um að gera að drekka, reykja og bíða. Mr. Bumbo einn er glaður og reifur. En það gagnar ekki hin- um, þeir eru ekki enn komnir í sömu tóntegund. Skammdegismyrkrið á ennþá TlMARITIÐ VAKI 68
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Vaki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.