Vaki - 01.09.1952, Page 74

Vaki - 01.09.1952, Page 74
Skjól, sem hann gat flúið til þegar illa blés og kalt, en líka brýning í mótviðri. Hann hugleiddi hana oft þegar hann gekk heim eftir gleði kvöldsins, um leið og hann dáðist að fegurð norðurljósanna. Því jafnvel hinn aumasti allra þarf að eiga þau vé, sem hann getur kropið fyrir í auðmýkt hjartans. Stundum er það hugsjón, trú, í tengslum við dul hinna hinztu raka. Stundum jarðnesk kona, er umsveipuð hjúpi siðrænnar fegurðar stendur ræflinum í huga hans langtum ofar. Hún er tákn, von, vissa um beti'a líf. María, grannvaxin, léttstíg, með ljósrautt hár og íslenzk, blágrá augu eins og þau eru fegurst. o o ° Eftir dádegismat og skammir, sem ekki eru of miklar því að það eru jól, reynir hann að leggja sig. Hann er ennþá óstyrkur og nýtur vökunnar ekki til fulls. Á ég að halda áfram? Ég lofaði Sigga því. Skyldi hann vilja halda áfram? Það er gaman að drekka, það hreinsar blóðið og stundum sér maður sjálfan sig betur á eftir. Maður viðurkennir það sem skorti þor til að viðurkenna áður. Aðrir segja meira en venjulega. Sumt sem maður skildi ekki áður skilur maður nú. In vino veritas in aqua sanitas. Einar Gríms fór ekki heim, fölur, grannur og greind- ur. Sennilega með minnimáttarkennd. Hann er horaður og drekkur mikið. Hann sofnar við þessar hugsanir og þreyttur líkami hans fær hvíld. ° o Þegar hann vaknar aftur er kolniðamyrkur í herberginu. Hann er endur- nærður, en dálítið máttlaus og liggur um stund og hugsar. En kvöldið er kom- ið og bezt að flýta sér til Sigga. o o ° Pelinn er sjúskaður á svip, þegar Gestur lcemur til hans. Dofi svefnsins er í augunum, og andlitið er gráfölt, hárið klesst og röddin rám og stirð. Andskotinn, þetta var ljóti skepnuskapurinn þarna í gær; þú varst stung- inn af, þegar ég vaknaði. Ég læddist út til að vekja ekki svínið, hann lá eins og rotuð sýr. Hefurðu ekki verið hálf slappur í dag? Jú, heldur, svarar Gestur. Já, blessaður góði, við hressum okkur á eftir, ég er búinn að tala við fugl- inn, hann á nógar birgðir. Þarf ekki að borga honum? Allt í lagi, það má settla það seinna, hann er ekkert nízkur. Þá er allt í lagi. Pelinn þegir eins og hann þurfi að glíma við eitthvert leyndarmál, bítur á vörina. Heyrðu, viltu kók? spyr hann svo. Áttu hann kaldan? Já. Komdu þá með hann, svarar Gestur. TlMARITIÐ VAKI 72
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.