Vaki

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vaki - 01.09.1952, Qupperneq 77

Vaki - 01.09.1952, Qupperneq 77
fast og raula hver fyrir sig og reyna að henda ónotum hver í annan. En það eru máttlaus ónot. Jón, sá fyllsti rambar á barmi grafarinnar og það er orðið ó- merkilegt, lífefnafræðilegt atriði hvenær hann fer yfrum. Hann hlýtur að gera það. Yfir svip Einars Grímssonar kemur öðru hvoru bros — hann jafnvel hlær og hristir sig þá allan. Pelinn er orðinn stífur, en þó ekki farinn að fölna. Gest- ur er ennþá með minnst vín í blóðinu og horfir með talsverðri meðvitund á fé- laga sína. Allt í einu kemur geysileg roka frá Einari, öskurhlátur, svo þeir hrökkva allir við. Hann steytir hnefann með glasið í hendinni framan í einhverja ósýni- lega veru í loftinu. Ég skal ekki fara í hundana. Eftir allt skal ég. . . . Heyrið þið það, aumingjar og asnar. Ég skal sigra. Síðan hlær hann, hlær holt. Væru eyru þeirra næmari, heyrðu þeir nú þrusk í herberginu við hliðina. Það er barið á dyrnar og þær eru opnaðar um leið. 1 dyrunum stendur kven- maður, einhversstaðar milli tvítugs og fertugs. Hún er í slitnum rauðbrúnum kjól, víðum í hálsinn og helzti of stuttum. Hún er með rytjulegt, svart hár, sem minnir meir á húsgagnastopp en mannshár. Andlitið er gráfölt af illu líferni, og varirnar bera þennan annarlega lit, er kemur fram, þegar litlausar varir, sem hafa einhverntíma verið málaðar, eru að missa síðasta vottinn um lit, — annars væru þær grárri en andlitið. 1 augunum enginn sársauki, engin þjáning, engin kvöl, ekkert. Augu, sem hafa verið svipt öllum tengslum við mannlega von. Það er vart skiljanlegt að hægt sé að sjá með þeim. En hún sér. Röddin er löngu slitin og máð. Hæ, strákar, eigið þið eitthvað að súpa? segir hún uppgerðarlega, til þess að reyna að falla inn í samkvæmið. Komdu, elskan mín, og seztu hérna; nóg vín, vín eins og þú vilt. Þrátt fyrir allt er eitthvað eftir af kvenleika í hreyfingum hennar. Hún sezt prúð á legu- bekkinn og krossleggur fæturna, og með hreyfingu, sem löngu er orðin fölsk og tilgangslaus, aðeins gamall vani, lyftir hún hárinu frá hnakkanum. Eigið þið eitthvað að reykja? Gestur horfir furðu lostinn á konuna. Hann hefur aldrei fyrr setið augliti til auglitis við kvenmann úr Strætinu. Hann hefur aðeins séð þær úr fjarska og lítið skynjað af djúpinu sem er á milli Austurstrætis og Hafnarstrætis. Nokkur skref sem hægt er að ganga í sólskini eða stjörnubirtu og komið í annan mann- heim. Einar fálmar eftir sígarettu á borðinu. Gestur kemur auga á eldspýtustokk, hremmir hann og kveikir í fyrir hana. Takk fyrir, segir hún. Mikið er þetta prúður piltur, bætir hún við stillilega, og daufur glampi sést í augunum, eða ef til vill aðeins endurspeglun frá kert- inu. Og hún reynir að brosa. Hann finnur það að í þessum orðum er dómur. Hann er ungur skólapiltur sem á gæfuna framundan, maður af öðru tilverusviði. Þrátt fyrir vínið sem er í líkama hans, þrátt fyrir aumt ástand hans í nútíðinni, þá á hann fortíð, og það sem mest er um vert, framtíð. Síðan segir hún jafn kurt- eislega og áður: Gætuð þið gefið mér eitthvað að drekka. Gestur seilist eftir glasi Jóns. Það liggur á gólfinu og hefur oltið um eftir að eigandinn hafði ekki lengur not fyrir það. Hann réttir fram glasið svo Ein- ar geti hellt í það. Blandara? spyr Gestur. TlMARITIÐ VAKI 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122

x

Vaki

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.