Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 76

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 76
58 TÍMAEIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA tún og víða líka hálf þýfðar engjar. Heyin voru aðal undirstöðuatriði hjá sveita bóndanum til að komast á- fram með búskapinn. Því urðu allir sem höfðu nokkuð stórt bú að hafa nokkuð margt vinnufólk, með því líka að á þeim tíma var ekki mikið kaup sem vinnufólki var greitt, mið- að við það sem þeir urðu að borga kaupafólki, karlmanninum vættar virði í vörum, eða sex dali í pening- um um vikuna, en kvenmanni helm- ingi minna. Eftir því sem eg heyrði og vissi bezt fengu vinnumenn í kaup ekki meir en fjórar flíkur á ári og fjögur til sex kindafóður, og ef þeir áttu hest, þá fengu þeir fóður fyrir hann þegar hann gat ekki bjargað sér á jörðunni. Kvenfólk fékk helmingi minna. Líka vissi eg til að stöku bændur létu vinnumenn sína hafa hálfan hlut sinn í kaup, yfir vetrar- vertíðina, hvert sem þeir fengu mik- ið eða lítið, stundum höfðu þeir menn mikið upp úr því ef þeir fisk- uðu vel. Af því að þessar endurminningar sem eg hefi verið að segja frá, til- heyra mest líkamlega lífinu, vil eg segja eitthvað frá andlegu eða trú- arlegu hliðinni, því þar hefi eg margar endurminningar frá, og tek eg þá dæmið af heimilissið foreldra minna, er mér var sagt að væri sið- ur alstaðar. Það sýndist á þeim tíma að fólk væri mikið trúarsterk- ara en síðar varð. Strax eftir vet- urnætur, þegar vökur byrjuðu, var í vöku lokin áður en fólk fór að hátta lesinn kvöldlestur. Það voru hug- vekjur sem náðu frá veturnóttum til jóla. Þær hétu Sturmshugvekj- ur. Eg held þær hafi verið danskar, en útlagðar á íslenzku. Það var alltaf sunginn sálmur eða vers und- an og eftir lestrinum. Frá jólum til langaföstu voru lesnar Vigfúsar hug- vekjur, með sömu aðferð. Þegar langafasta byrjaði, var byrjað á Passíusálmum svo þeir yrðu búnir fyrir páska og lesnar hugvekjur sem áttu við þá. Eg man ekki eftir hvern þær voru. Líka var lesið á öll- um miðvikudögum, yfir sjö vikna föstuna, í Vídalíns miðvikudags pré- dikunum. Móðir mín las alla hús- lestra. Hún var greind kona og mjög trúarsterk og vildi halda fast við allt sem þá tíðkaðist í trúarlegu til- liti. Faðir minn byrjaði alla sálma. Eg held að hann hafi kunnað öll gömlu lögin sem þá voru til. Kirkjur voru vel sóttar á þeim tíma, bæði sumar og vetur eftir því sem veður og færð Ieyfði, líklega mest af trúar þörf, og þá máske líka til að létta sér upp og sjá kunningja sína. Fólk á þeim tíma leit hátt upp til prestsins, bæði fyrir það, að hann var mentaður maður og svo Guðs sendiboði til að kenna mönnum rétt trúarlíf og siðferði, enda var það töluvert hrífandi sjón, að sjá falleg- an mann skrýddann í fallegum messuklæðum annaðhvort fyrir alt- ari eða í prédikunarstólnum. Þó það væri kannske ekki allt áreiðan- legur sannleikur sem hann sagði, voru menn ekkert að grufla út í það, því hann vissi hvert sem var betur en þeir. Ef einhver maður var svo framhleypinn að segja að hann vissi ekki hvert það væri allt sannleikur sem prestarnir segðu, þá var hann strax merktur sem villi- trúarmaður, hjá þeim er trúarsterk-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.