Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 82

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 82
64 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA telpan sér að systur sinni og spyr hana um huldufólkið. En þegar Þórgunnur svarar henni út í hött og telpan finnur að ekkert er á þeim svörum að græða, hættir hún að spyrja. Ljósið er slökt og nú grúfir myrkr- ið yfir öllu, kalt og ógnandi. Telpan þrífur dauðahaldi í systur sína. ó! Það er hræðilegt ef það er satt, sem Ranka gamla sagði henni í dag að hann Andrés malari sé um- skiftingur. Góði gamli Andrés, og telpan andvarpar þungt í fyrsta sinn á æfinni. En Þórgunnur þráir svefninn, því að þá flýgur vitund hennar til móts við hann, sem hún þráir alla daga. Þar mætast þau í gagnkvæmri hrifn- ingu. Þá sjá þau lífið í glitrandi skuggsjá sinna eigin drauma og vona. Það er gott að lifa og vera til. Lifa og þrá. SÓLARDANS (Frásögn Vigfúsar Þorvaldssonar, gamals manns á níræðisaldri. Skrifað hefir eftir minni hans J. J. B.) í æsku heyrði eg oft talað um sól- ardans. Hann átti að fara fram á páskadagsmorguninn og var sólin þá með öllum kristnum lýð, að fagna upprisu mannkynsfrelsarans, eða það var að minsta kosti sannfæring þeirra er því fyrirbrigði trúðu. En um það voru deildar meiningar, hvort þetta ætti sér í raun og veru stað, eða það væri hjátrú og hégilja, en sjálfur var eg lítt trúaður á fyrir- brigði þau er skynsemi mín gat ekki gripið. Svo var það á páskadags- morgun einn í miðjum einmánuði, að eg var ásamt fleirum mönnum til sjóróðra á litla Hliði á Álptanesi í Gullbringlusýslu. — Daginn fyrir páskadaginn hafði mál þetta borið á góma á milli okkar sjómannanna og skiftumst við í tvo flokka, með og mót, en komum okkur þó saman um að við skyldum fara á fætur snemma, daginn eftir, á páskadag- inn og ganga nú úr skugga um þetta mál og það gerðum við, 10—15 manns sem þátt tókum í samræðun- um og ákvæðinu daginn áður. Þegar við komum út, var sólin að rísa upp yfir sjóinn. í kringum um hana var móleit blika, eða skýslæða sem var gegnsæ. Frá sólunni sjálfri stafaði geisladýrð svo undursamleg og hríf- andi, að við stóðum forviða og steini- lostnir. Geilsarnir læstu sig í gegn- um skýið, syndruðu eins og ótal rafljós í næturkyrð og blikuðu með eldlegu afli inn og út um skýið og um kring sólina. Áhrif þau er þessi sýn hafði á mig voru einkennileg og ekki gott að lýsa þeim. Það fyrsta sem mér varð fyrir var að depla augunum og núa þau, því mér flaug í hug að hér væri um missýn, eða skynbrigði að ræða. En það var árangurslaust. Þessi fyrirbrigði voru þarna átakan- lega og ómótmælanlega fyrir augum okkar allra. Efa spursmálinu um sólardansinn var svarað, minsta kosti í huga okkar allra sem þarna vorum staddir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.