Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 96

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Page 96
78 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA um, þar sem stéttaskipunin er á- kveðnari, en þó er það svo föst venja að það er t. d. sjaldgæft að dætur ríkra manna giftist snauðum verka- mönnum. Hitt skilyrðið er, að við- kynning frá barnæsku eða skyldleiki séu ekki of náin. Þó margar undan- tekningar séu vitanlega frá því, er það þó tíðast, að fólk, sem hefir þekst frá barnsaldri giftist ekki saman; og flestir hafa ýmugust á giftingum skyldmenna. Þetta hvort tveggja hefði stuðlað að hlutfalls- lega hærri tölu giftinga innbyrðis meðal Vestur-íslendinga, ef innflutn- ingur fólks frá íslandi hefði haldist líkur og hann var fyrir aldarfjórð- ungi. Þegar þá reynt er að fá heildar- yfirlit yfir giftingar íslendinga hér vestan hafs, frá því fyrst að þeir byrjuðu að flytjast hingað og fram á þennan dag, verður útkoman sú, að tæpur þriðjungur hjónaband anna, eða rúmlega 30%, munu vera blönduð. Hvort þessi tala er hærri en hjá öðrum þjóðflokkum, sem standa að öðru leyti á svipuðu stigi og íslendingar og búnir eru að vera jafn lengi í landinu, er ekki unt að segja, nema að samanburður væri gerður; en líklegt er að svo sé ekki. Það er líklegt að útkoman yrði nokk- uð svipuð hjá öðrum skandínavisk- um þjóðum t. d. Hitt er víst að á meðal þjóða, sem eru ólíkari megin- stofni hérlends fólks, engilsaxneska stofninum, t. d. slafnesku þjóðflokk- anna, yrðu blönduðu giftingarnar færri. Sama er og að segja um þá þjóðflokka, sem af trúarbragðaleg- um ástæðum blandast ógjarnan öðr- um félagslega, og þá enn síður hjú- skaparlega, svo sem Mennonítar og fleiri. Fróðlegt er að athuga við hvaða þjóðflokka hér í landi íslendingar hafa helzt mægst. Það er auðvitað öllum kunnugt að enskumælandi þjóðirnar eru þar í yfirgnæfandi meirihluta. Það stafar sjálfsagt mest af því, að þær hafa verið lang mann- flestar þar sem íslendingar hafa búið. En svo hafa þær líka verið skoðaðar sem “innlendar” þjóðir, af því að aðalmál landsins er enska, þótt fjöldi af enskumælandi fólki sé hingað flutt frá brezku eyjunum samtímis íslendingum og síðar. — Aðrar þjóðir, eins og Norðmenn og Svíar t. d., hafa verið útlendingar alveg eins og íslendingar, og veldur það eflaust nokkru um að íslending- ar hafa yfirleitt lítið mægst við þá. Það er oft ómögulegt að vita, hverr- ar þjóðar sá eða sú er, sem íslenzk kona eða íslenzkur maður hefir gifst, þegar fara verður eftir gift- ingarumgetningum blaðanna; því að oft er aðeins tekið fram, að hann eða hún sé “hérlend” eða “ensk”, en það getur þýtt fjög- ur eða fimm mismunandj þjóð- erni. Það mun vera almenn skoðun, að íslenzkar stúlkur, sem gifst hafa öðrum en íslendingum, hafi einkum valið sér Skota fyrir eiginmenn, og getur vel verið að svo sé. Flestir munu líta svo á að þetta stafi af því að Skotar og íslendingar séu í mörgu líkir. En sú skoðun er mjög hæpin. Fyrst og fremst' er það áreiðanlegt, að það fólk giftist ekki gjarnast saman, er líkast er, heldur þvert á móti. f öðru lagi eru Skotar og fs- lendingar ekki eins líkar þjóðir og skandinavisku þjóðirnar og fslend-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.