Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Síða 151

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Síða 151
ÁTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS 133 langa ræðu, rifjaði upp minningar sín- ar frá æskuárunum, fyrst á Islandi 'Og svo úti í löndum og var ræðan bæði skýr og skemtileg. Þá heyrir að geta í þessu sam- bandi heimsóknar ríkisstjórans í Canada, hans göfgi Tweedsmuir lávarður, til vor á s. 1. hausti. Er það önnur heim- sókn er ríkisstjóri Canada gerir Islending- um sérstaklega. Hin fyrri var sú er Duf- ferin lávarður gerði haustið 1877, eru því uær 50 ár milli slíkra hedmsókna. Fyrir tilmæli sambandsþingmanns dr. Josephs T. Thorsons gekst stjórnarnefndin fyrir því að boðað var til almenns fundar hér í bæ, uteðal Islendinga, til þess að ræða um, og skipuleggja móttöku þessa virðulega gests sem sýna vildi þjóð vorri þenna sér- staka sóma. Ekki varð frá öllu gengið á einum fundi, svo aftur varð að boða til funda og urðu fundirnir alls fjórir, áður öllu var lokið. Urðu samtök hin beztu um Þetta mál og mun það alment hafa verið viðurkent að móttakan að öllu leyti hafi orðið Islendingum til sóma. Fjármál. Erá fjárhag félagsins þarf eg ekki að skýra. Leggur féhirðir fram prentaða fjárhagsskýrslu er útbýtt verður meðal fundarmanna. Eg skal aðeins geta þess að félagið stendur efnalega allvel. Og yfir Þetta komandi ár á það i vændum rifari inntektir eftir Tímaritið en verið hafa á undanförnum árum. Æltti því afkoman á Þessu næstkomandi ári að verða með Þetra móti. En svo þarf að vera. Eitt af Því marga sem vinna þarf félaginu til hagsbóta er að efla fjárhag þess. Með bættum fjárhag getur það unnið margfalt verk við það sem því auðnast að gera á ári hverju. En svo skal ei meira sagt um Það að þessu sinni. Læt eg þá og líka hér staðar nema. — Vísa eg svo þeim málum til yðar, sem samkvæmt dagskránni liggja fyrir og óska eg og vona að oss auðnist öllum að ráða þeim svo til lykta að félagsskap vorum verði til eflingar og þjóðflokki vorum til gagns og nytsemdar. Kögnv. Pétursson Þökkuðu áheyrendur erindið með miklu lófaklappi. Forseti skýrði frá, að fyrst lægi fyrir að kjósa kjörbéfanefnd. Tiliaga dr. Rich- ards Beck, studd af hr. Páli Guðmunds- syni, að fela forseta að skipa nefndina. Samþykt. 1 nefndina voru skipaðir: R. Beck, Páll Guðmundsson og Bergþór E. Johnson. Næst lá fyrir að kjósa dagsskrárnefnd. Tillaga frá Guðmann Levy og Gunnbirni Stefánssyni, að forseti skipaði nefndina samþykt. Nefndi forseti þessa: Á. P. Jóhannsson, Þorlák Þorfinnsson of Jón J. Bíldfell. Forseti æskti eftir skýrslum frá em- bættismönnum. Ritari, Gísli Jónsson las þá skýrslu sina, og var hún svohljóðandi: Skýrsla ritara Eg veit ekki hver fann upp á þvi að láta ritara gefa skýrslu. Eg man ekki til þess að það væri heimtað, þegar eg var skrifari þessa félags, endur fyrir löngu, á æsku- árum þess. Forseti gerir að sjálfsögðu árlega grein fyrir störfum félagsins á liðna árinu, 'og ymprar á löngunum þess og fyrirætlunum í framtíðinni. Ritara er þar af leiðandi ekkert eftir skilið, nema beina- grindin, það er registur yfir fundarhöld og bréfaskriftir. Á þessu liðna ári hefir stjómarnefndin haldið 16 venjulega nefndarfundi, þar sem mál félagsins, þau er síðasta ársþing fól henni til meðferðar, hafa verið rædd og afgreidd, nauðsynlegir reikningar sam- þyktir og ýms ný mál, er eigi voru fyrir séð, á ein eður annan hátt meðhöndluð. Ennfremur boðaði nefndin til og stóð fyr- ir fjórum almennum fundum viðvíkjandi heimsókn hans hágöfgi, Baron Tweeds- muir, landstjóra Canada á síðatsliðnu hausti. Var það að nokkru leyti fyrir beiðni og tilhlutun sambandsþingmanns, J. T. Thorson. Fór móttökuhátíð sú fram í Gimli-bæ — öllum hlutaðeigedum til hins mesta sóma, svo sem kunnugt er orðið, og voru víst flestir nefndarmenn þar viðstadidr. Þá minnist ritari með sérstakri ánægju ferðar, er hann og féhirðir fóru í um- boði nefndarinnar, vestur til Elfros, í til- efni af sjötugasta afmælisdegi skáldsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.