Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Blaðsíða 155
ÁTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
137
nefndin athygli á þvi, að góðir og gildir
félagar i deildinni “Frón” hafa full þdng-
réttindi, einnig góðir og gildir félagar í
aðalfélaginu.
Á þjóðræknisþingi 22. febr. 1937.
Richard Beck
Páll Guðmundsson
Bergthor E. Johnson
Skýrslan var samþykt i einu hljóði.
Forseti bað þá fulltrúa frá deildum fé-
lagsins að gefa skýrslur. Th. Thorsteins-
son las eftirfylgjandi frá deildinni “Brúin”
í Selkirk:
Arsskýrsla deildarinnar “Brúin”
Selkirk 1936
Deildin “Brúin” telur nú 65 meðlimi.
Það hafa verið haldnir 7 starfs og skemti-
fundir á árinu og þar að auki 3 samkomur.
Éitt hið allra þýðingarmesta spor í átt
til samúðar og samvinnu í þjóðræknis-
hiálum í þessum bæ var stigið á siðast
liðnu sumri, þegar hið íslenzka lestrarfé-
iag bæjarins sameinaðist þjóðræknisdeild-
inni. Með þeim skilmálum að deildin verji
til bókakaupa og bókaviðhalds $30.00 á
ári hverju og einnig að heimili bókanna
verði ávalt í Selkirk.
Þessi sameining .hefir reynst mjög vel
°g verið mjög hugljúf báðum málsaðilum.
Deildin réði kennara í íslenzku fyrir 3
naánuði síðastliðinn vetur, og nutu um 70
börn þeirrar kenslu.
Hefir kensla að undanförnu farið fram
í heimiahúsum, en nú í vetur bauð skóla-
ráð bæjarins kenslunefnd þessarar deild-
ar eitt af skólahúsum bæjarins endur-
Sjaldlaust og fer fram íslenzku kensla
Þar eftir kl. 4 á daginn 4 og 5 daga á
viku.
Samkvæmt skýrslu féhirðis þá hafa út-
gjöld og inntektir á árinu verið sem fylgir:
1 sjóði frá fyrra ári .............$ 21.04
Jnntektir alls..................... 169.93
$ 190.97
^tgjöld ........................... 164.96
1 sjóði 1. jan. 1937 ..............$ 26.01
Th. S. Thorsteinson, skrifari
Frá deildinni “Iðunn” í Leslie, Sask.,
las Páll Guðmundsson eftirfylgjandi
skýrslu:
Arsfréttir deildarinnar “Iðunn”
að Leslie, Sask.
Herra forseti, háttvirti þingheimur:
Enn á ný hefst hið árlega þing í>jóð-
ræknisfélags Vestur-lslendinga, bakhjarls
islenzkra mála hér vestan hafs. Margir
verða að sitja heima, er mundu óska að
vera þar viðstaddir, þvi þrátt fyrir alt og
alt, er það þó islenzkast af öllum mótum
vorum hér vestra.
Ársfréttir frá vorri deild verða ekki
margbrotnar frekar venju; það hefir verið
reynt að halda í horfið og styðja að ís-
lenzkum málefnum, eins mikið og unt
hefir verið, en Islendingum fækkar hér
óðum, og erfiðleikar íslenaks félagsskapar
vaxa árlega.
Á þessu síðastliðna ári andaðist einn af
meðlimum deildarinnar Gunnar Hermanns-
son. Hann var á bezta aldri, atorku og
atgerfis maður. Vottar deildin aðstand-
endum hins látna, samúð og hluttekningu.
Starf deildarinnar á þessu ári hafa aðal-
lega falist í fjórum starfsfundum og fjór-
um samkomum er deildin hefir staðið fyr-
ir. Einnig vann deildin í samráði við
Þjóðræknisfélagið og deildina “Fjallkon-
an” að Wynyard að sjötíu ára afmælis-
kveðjugildi, er góðskáldinu Jóhanni Mag-
núsi Bjarnasyni var haldið s. 1. maí að
Elfros.
Þá hafði deildin samkomu í júní. Var
þar á boðstólum ágætis skemtiskrá. Að-
komandi á skemtiskrá voru: séra Jakob
Jónsson og Árni Sigurðsson. Var einróma
þakklætishljóð í öllum samkomugestum,
til séra Jakobs og Árna, fyrir skemtunina.
Árni líka, opinberaði okkur nýjan rithöf-
und, hér innan bygðarinnar Benjamin
Einarsson. Las Árni upp eftir hann smá-
sögu, sem 'hélt áheyrendunum í einlægri
eftirtekt.
Þá stofnaði deildin til útimóts í júli. Var
það haldið að heimili Stefáns Andersonar.
Er það vel i bygð og hinn ákjósanlegasti
staður fyrir mótið. Átroðningur er það
fyrir heimilið, en þau hjón hafa boðið það
velkomið. Þakkar deildin þeim gestrisn-