Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1937, Síða 158
140
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
ANNAR FUNDUR
Annar fundur hins átjánda ársþings
Þjóðræknisfélags tslendinga í Vesturheimi
var settur kl. 4 síðdegis mánudaginn þann
22. febrúar 1937 af forseta félagsins, dr.
Rögnv. Péturssyni.
Ritari fundarins var settur Guðm. Árna-
son.
Forseti hóf umræður um fræðslumálin
og skýrði frá, hvað gert hefði verið við-
víkjandi kenslu í íslenzku í Wynyard,
Sask., og á Mountain, N. Dak.
Þar eð ritari fyrsta fundar, Stefán
Einarsson var kominn á fund, bað for-
seti hann, að lesa fundarbókina, og gerði
hann það. Var hún síðan samþykt með
lítils háttar orðabreytingum.
Sig. Melsteð mæltist til ,að dagskráin
væri lesin aftur ,og var það gert.
Dr. Richard Beck lagði til, og Sig.
Vil'hjálmsson studdi, að þriggja manna
nefnd væri sett í fræðslumálið. Tillagan
var samþykt ,og þessir voru settir í
nefndina: Thorl. Thorfinnsson, Mrs. B. E.
Johnson og J. J. Bíldfell.
Forsetinn gerði grein fyrir samvinnu-
málinu. Bergthór E. Johnson lagði til, og
Páll Guðmundsson studdi, að forseti skip-
aði þriggja manna nefnd í málið. Tillag-
an var samþykt, og þessir voru skipaðdr í
nefndina: Dr. R. Beck, Ásm. P. Jóhanns-
son og Guðm. Árnason.
Lagt til af Sigm. Laxdal og stutt af
Stefáni Jóhannssyni, að kosin væir fim|m
manna nefnd í útgáfumálið. Tillagan var
samþykt. 1 nefndina voru útnefndir: Dr.
R. Beck, B. E. Johnson, Thorst. Gíslason,
Friðr. Sveinsson, Kristján Indriðason og
Sig. Melsteð. Tillaga Guðm. Árnasonar
og Á. P. Jóhannssonar, að þeir sex, sem
útnefndir hefðu verið, væru kosnir. Til-
lagan samþykt.
Lagt til af dr. Beck og stutt af S. Lax-
dal, að fimm manna nefnd væri kosin i
útbreiðslumálið. Till. samþ. I nefndina
voru kosnir: Thorst. Gíslason, P. Guð-
mundsson, Thorst. Thorsteinsson, Mrs. B.
E. Johnson, og Walter Jóhnansson.
Bókasafnsmál.
J. J. Bíldfell spurði eítir skýrslu í bóka-
safnsmálinu. Forseti sagði, að engin
skýrsla væri fyrirliggjandi. J. J. Bildfell
lagði til og Ásm. P. Jóhannsson studdi, að
þriggja manna nefnd væri sett í málið.
Tillagan var samþykt. I nefndina voru
settir: Davíð Björnsson, Miss Sigurrós
Vídal og Ólafur Pétursson.
Guðm. Goodman talaði nokkur orð um
bókasafnið íslenzka í Wynyard; skýrði
frá tithögun með bókakaup frá Islandi
og fleira.
J. J. Bíldfell gerði grein fyrir, hvers
vegna iþróttamálið hefði verið tekið á
dagskrá. Lagði hann til, að þriggja
manna nefnd, sem ráðfærði sig við ein-
hverja þá menn, sem eru í íþróttafélaginu
“Fálkinn”, eða eru málinu kunnugir, væri
kosin. Um þetta mál urðu talsverðar um-
ræður og tóku þátt í þeim Thorl. Thor-
finnsson, Sigm. Laxdal, Ól. Pétursson og
Hjalti Thorfinnsson. Tillagan var studd
af Thorl. Thorfinnssyni og samþykt. —
Forseti mæltist til þess, að nefndin væri
kosin, en ekki skipuð. Nokkrar umræð-
ur urðu um það. Loks voru kosnir í
nefndina Grettir Jóhannsson, Thorvaldur
Pétursson og Thorst. Thorsteinsson.
Minjasafnsmálið
Forseti skýrði frá því, sem gert hefði
verið í þessu máli; sagði hann að fólki
væri það nokkuð kunnugt, af því, sem
birzt hefði við og við um það í blöðunum.
1 milliþinganefnd í þessu máli sagði hann
að verið hefðu B. E. Johnson og dr. Ágúst
Blöndal. Jón J. Bíldfell gerði grein fyrir,
hvers vegna málið hefði ver.ið tekið á dag-
skrá. Talaði hann um, hversu nauðsyn-
legt væri, að vernda gamla, fágæta, ís-
lenzka muni frá glötun. Forseti gat þess,
að sér hefði þá um daginn borist gjöf frá
Mr. Jóni Jónssyni í Selkirk, gamlar
beizlisstangir. Mrs. Jóhanna Cooney
skýrði ritara frá, að hún hefði í eigu sinni
gamla, íslenzka skauta, sem hún vildi
gefa safninu. Guðm. Goodman gerði fyr-
irspurn um húsnæði fyrir safnið. Forseti
skýrði frá, að vegna milligöngu Mr. Sig.
Melsteðs, væri liklegt, að herbergi fengist
fyrir safnið í The Federal Building, þar
sem því yrði raðað, en að lokum væri því
ætlaður staður á fjöllistasafni Manitoba í
Auditorium byggingunni. Tillaga J- ^