Hugur - 01.06.2008, Side 31

Hugur - 01.06.2008, Side 31
Heimhvörf hnattvæðingar og uppstreymi menninga 29 eigin hefð og sýnt nokkurn þrótt síðan Yan Fu tók inn vestræna frjálslyndis- stefnu seint á tímaskeiði Qing-keisaraveldisins (1644-1911). En á tuttugustu öld tókst æ kínverskari útgáfu af marx-lenínisma að kæfa deweyískan pragmatisma í fæðingu, drekkja leifunum af konfiisíusarhyggju og gera sjálfan sig að nýjum menningarlegum rétttrúnaði. Samtímis litu margir ef ekki flestir nafntoguðustu meðlimir hinnar nýju konfusíusarhyggju, eins og Tang Junyi og Mou Zongsan, til Evrópu og einkum Þýskalands sem mælistiku til að réttlæta kínverska „annars stigs“ hugsun sem virðulega heimspekihefð. Það hefur ótvíræða þýðingu fyrir þá samræðu sem vænta má í nánustu framtíð að í fyrstu átökunum milli konfusíus- arhyggju og Dewey, sem áttu sér stað undir merkjum Fjórða maí-hreyfingarinnar í Kína eftir 1919, fordæmdu menntamenn nýmenningarhreyfingarinnar konfusí- usarhyggju sem slímlag sem stíflaði æðar Kína og hefti lífsnauðsynlega útbreiðslu þeirra nýju hugmynda sem þörf væri á til að gera þjóðinni kleift að ganga inn í heim nútímans. Og þá var mælt með Dewey sem lækningu.6 A meðan marx-maóismi hefur að mestu liðið undir lok hefur átt sér stað greini- leg þróun í kínverskri samtímaheimspeki. Hún hóf flugið hjá Kant og Hegel, beindi svo athygli sinni að Wittgenstein og beinir nú sjónum sínum einkum að fyrirbærafræði og Heidegger. Það er þýðingarmikið fyrir h'kur á konfusísk- deweyískri samræðu að hvatinn fyrir því að áhuginn færðist frá Kant til Heideg- gers hefur að umtalsverðu leyti verið sá skyldleiki sem hinn síðarnefndi er talinn hafa við innfædda hugsunarhætti.71 raun hefur endurreisn kínversks sjálfræðis um miðja tuttugustu öld og stöðug framvinda Kína í átt til heimsveldis á síðustu áratugum ýtt undir endurnýjaða en þó gagnrýna vitund Kínverja um eigin menn- ingarhefð sem grundvöll fyrir sjálfsskilning. Samtímis hefur þessi framvinda þjónað sem undirstaða þegar fengist er við ferli hnattvæðingarinnar sem skiHn er sem möguleiki á innsýn í fjölmenningarleg sjónarmið. Þetta eru ferli sem komu vissulega seint fram á sjónarsviðið en eru nú óhjákvæmileg. Á sama tíma og evrópsk heimspeki hefur verið álitin mælistika heimspekilegrar nákvæmni hefur kínverskum fræðimönnum löngum fundist þeir h'tið geta lært af erlendum hugleiðingum um menningararfleifð Kína og því hunsað að mestu 6 Arið 1919 kom Dewey til Kína í boði fyrrum nemenda sinna við Kólumbíuháskóla, en þar á meðal voru Hu Shi og Jiang Menglin sem komist höfðu til áhrifa sem bæði fræðimenn og umbótamenn innan nýmenningarhreyfingarinnar. Um tveggja ára skeið hélt Dewey fyrirlestra víðsvegar um Kína og fékk hann milda umfjöllun í hinum nýju innlendu dagblöðum. Robert Clopton og Tsuin-chen Ou greina frá því að „Dewey naut ekki fylgis á meðal fagheimspekinga í deildum kínverskra háskóla, því flestir þeirra héldu tryggð við þýskar og franskar heimspekihefðir sem þeir höfðu hlotið þjálfun í á námsárum sínum í Evrópu“, sjá John Dewey: Lectures in China 1919-1920 (Honolulu: University Press of Hawaii, 1973), s. 13. Þeir gefa þar með í skyn að á þessum óræða tíma hafi hugmyndir Deweys verið „mistúlkaðar" af áheyrendum úr hópi baráttufólks sem hafi haft í for með sér að álirif þeirra voru meiri á félagslegar og pólitískar þarfir samtímans en eiginlega fagheimspeki. Leiða má að því líkur að slík „mistúlkun" hefði ekki verið Dewey á móti skapi og hann hefði jafnvel smtt hana. Sjá Gu Hongliang, Shiyong zhuyi de wudu: Duiuei zhexue dui Zhongguo xiandaizbexue deyingxiang [Mistúlkun pragmatisma: Ahrif heimspeki Deweys á kínverska nútimaheimspeki] (Shanghai: Huadong shifan daxue chubanshe, 2000); og Zhang Baogui, Duweiyu Zhongguo [Dewey og Kina] (Shijiazhuang: Hebei rcnmin chubanshe, 2001). 7 Hér má einkum benda á Zhang Xianglong, Cong xianxiangxue dao Kongfuzi [Frá fyrirbærafræði til Konfusíusar] (Beijing: Shangwu yinshuguan, 2001). Það er athyglisvert að í ljósi þess að hér er um fræðirit að ræða naut það óvenju mikilla almennra vinsælda þegar það kom út.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.