Hugur - 01.06.2008, Blaðsíða 106

Hugur - 01.06.2008, Blaðsíða 106
104 Olafur PállJðnsson óendanleg illvirki vegna þess að það sem hann gerði, það gerði hann ekki af sér- stökum ástæðum heldur af vanmætti til að skoða hvaða ástæður sem var. Þetta þýddi að hann var fær um að fremja illvirki af hvaða ástæðu sem var og því átti geta hans til illra verka sér engin takmörk. Það er gegn svona böli sem hugsunin sem slík kann að brynja okkur, böli sem stafar ekki af illu innræti heldur af getuleysi til að hugsa. Og það er á þennan hátt sem gagnrýnin hugsun - eða það að vera gagnrýnin manneskja — ver okkur gegn því að reisa illskunni minnisvarða á borð við útrýmingarbúðir nasista. I okkar daglega amstri þar sem við verðum stöðugt fyrir áreiti af umhverfinu og þar sem umhverfið kallar á að við gerum eitthvað - kallar á athafnir frekar en íhugun - þar kemur vindur hugsunarinnar sér vel. Hann fær okkur til að staldra við, taka okkur frí frá síbyljunni og eiga samræðu við okkur sjálf. Arendt orðar þetta með eftirfarandi hætti: Það sem vindur hugsunarinnar skilur eftir sig er ekki þekking; það er hæfileikinn til að greina rétt frá röngu, fagurt frá ljótu. Og þetta get- ur vissulega komið í veg fyrir hörmungar, að minnsta kosti hjá sjálfri mér ...9 Hér birtist ákveðin mynd af hinni gagnrýnu manneskju. Að vera gagnrýninn er ekki það sama og að búa yfir þekkingu, og það að leita þekkingar er ekki endilega það sama og að vera gagnrýnin manneskja. Hugsuðurinn hans Rodins á að ýmsu leyti vel við hér, því hann hefúr sest niður til að íhuga málið - hann hefur leyft vindi hugsunarinnar að blása. Það sem ég hef verið að beina sjónum að, með hjálp Hönnuh Arendt, varðar það hvort hugsuðurinn standi aftur upp og hvað hann taki sér þá fyrir hendur. Þessar hugmyndir Hönnuh Arendt um eðli hugsunarinnar bera með sér endur- óm af grískum hugmyndum um skynsemi og þekkingu. I vísindum Grikkja voru spurningar um verðmæti eiginlegur hluti vísindanna. Skynsamleg rannsókn á náttúrunni innihélt rannsókn á því hvað væri gott eða farsælt fyrir mannlegt h'f. Þetta var svo vegna þess að sjálft skynsemishugtakið var gildishlaðið. I nútíman- um virðist hinsvegar viðtekið að skynsemi snúist fyrst og fremst um að leita hag- kvæmra leiða að gefnu marki. Hér er skynsemin tæknileg - skynsemishugtakið er tæknilegt hagfræðilegt hugtak. Viðfangsefni skynseminnar er val á leiðum að settu marki en ekki val á sjálfú markmiðinu.10 Þetta tæknilega skynsemishugtak er fyrirferðarmikið í vestrænum vísindum ekki síður en í vestrænni hugsun almennt. Það birtist e.t.v. skýrast í þeirri raunhyggju sem reið húsum í rökgreiningarheimspeki á fyrri hluta 20. aldar. Þar var gildis- dómum vísað frá sem merkingarleysum og hludeysi talið ein af helstu dygðum vísindanna. Og þótt hugmyndin um hlutleysi vísindanna sé nú löngu fyrir borð 9 Hannah Arendt, „Thinking and moral considerations", bls. 189. 10 Max Weber gerir viðlíka greinarmun á Wertrationalitát og Zweckrationalitát - kenning hans var einmitt sú að rökvís kapítalismi vaeri í þann veginn að smætta skynsemishugtakið í hið síðara. (Ég þakka Geir Sigurðssyni fyrir þessa ábendingu.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.