Hugur - 01.06.2008, Qupperneq 141
Að spilla æskunni
139
Spillum ceskunni!
I störíum mínum með ungu fólki hefur mér oft orðið hugsað til Sókratesar og
örlaga hans að vera dæmdur til dauða fyrir að spilla æskunni.'8 Aðferð Sókratesar,
hin gagnrýna hugsun, þar sem ekki er hikað við að spyrja opinna, gagnrýninna
og stundum ögrandi spurninga fellur ekki öllum í geð. Hún gerði það ekki á hans
tímum og gerir það ekki alls staðar í nútímanum. Þetta á ekki síst við þegar ungt
fólk á í hlut. Við sjáum það vel víða í nútímaskólastarfi þar sem nemendum er
gert að hafa hljótt, sitja kyrrir og meðtaka þekkingu, en því mætti væntanlega
segja að sá kennari sem vill örva gagnrýna hugsun, sjálfstæða skoðanamyndun og
rökræðuhæfni kann að komast býsna nærri því að vera álitinn sá sem spillir æsk-
unni. Það fellur ekki öllum vel í geð að unga fólkið hafi sjálfstæðar skoðanir og
komi þeim á framfæri í orðræðu.19 En þetta er nú einmitt það sem heimspekingar
eiga að gera. Heimspekingar sem starfa með ungu fólki eiga að kenna því að til-
einka sér gagnrýna hugsun, móta sjónarmið sín og taka afstöðu og bera ábyrgð á
orðræðu sinni, hegðun og sjónarmiðum.
Með störfum sínum kunna heimspekingar eflaust nú eins og á dögum Sókra-
tesar að verða dæmdir fyrir að hafa slæm áhrif á unga fólkið, að spilla æskunni
eins og það var orðað. En hvað sem líður mismunandi sjónarmiðum um ágæti
heimspekiástundunar með ungu fólki, þá geta nútímaheimspekingar verið til-
tölulega rólegir, þar sem þeir munu væntanlega seint verða dæmdir til þess að
drekka eitur. Þó er aldrei að vita.
Abstract
Corrupting the Young: Doing Philosophy with Young People
In this paper the experience of practicing philosophy and ethics with students 13-
16 years old is described and discussed. In the elementary school Réttarholtsskóh
in Reykjavík almost all students took either philosophy or ethics classes in 2007-
2008. For the 8th grade there were philosophy classes with 15 students maximum
in each class, emphasizing philosophical discussions. Those one semester long
classes were mandatory. In 9th grade all students studied ethics for one semester
which was also mandatory. In ioth grade, philosophy was optional and 55-60
students attended philosophy classes in two groups. The main emphasis was on
introduction to philosophy and its various topics followed by discussions.
At the end of the paper I discuss briefly how existentialist philosophy has in-
fluenced my philosophy teaching with young people.
18 Platón, Md/svöm Sókratesar og Faidon í Síðustu dagar Sókratesar, í íslenzkum búningi eftir Sigurð
Nordal og Þorstein Gylfason (Hið íslenzka bókmenntafélag 1983).
19 Agætt dæmi um þetta átti sér stað í kirkju nokkurri í Reykjavík árið 2008. Grunnskólanemandi
var fenginn til að predika á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar en þar sem í predikun hans fólst m.a.
gagnrýni á biskupinn yfir fslandi sá sóknarpresturinn ástæðu til að biðja sóknarbörnin afsökunar
á orðum hans. Ottinn við gagnrýni og gagnrýna hugsun, sá ótti sem kostaði Sókrates lífið, er
nefnilega víða til staðar í íslensku samfélagi.