Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Síða 29

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Síða 29
Loftur á „hinu leiksviðinu“ Allt myndmálið og táknin hafa kvenlegar tilvísanir og vísanir til móður- innar. Brunnurinn, lausnarsteinninn sem vísar tii fæðingarinnar, lífs- steinninn sem verndar og viðheldur lífinu og hulinhjálmssteinninn sem vísar til þess sem er til, án þess að hann verði séður. Og loks er það óskasteinninn sjálfur sem liggur á botninum og skín hvítur gegnum vatnið — hann er tákn hins fullkomna samræmis, minningin um líf fóstursins í móðurlífi þar sem öllum óskum er fullnægt og vellíðunarlögmálið ríkir eitt. Kjarni þessa myndmáls er heit þrá Lofts eftir samræmi og fullkomnum samruna við aðra mannveru. Endurtekningarnar í textanum: „Fljúgðu, fljúgðu klæði . . .“ gefa hon- um seiðandi hljómfall, hljómfall töfraþulunnar, barnagælunnar, ævin- týrisins sem túlkar bernsku mannkynsins. En strax í öðrum þætti byrjar blekkingin að afhjúpast. Dísa er enn í skýjunum og vill halda stemningunni á milli þeirra Lofts frá deginum áður, en hann getur það ekki. Sjálfsfyrirlitning hans byrjar að koma í ljós og þó að Dísa lýsi ást sinni til Lofts tekst honum ekki að sjá sjálfan sig í ofmati hennar. Hann er undarlega firrtur og „fer undan henni í flæmingi“ (47) . „Á morgun . . . verðum við algerlega hamingjusöm“ segir hann og þegar Dísa hallar sér að honum og spyr: „Erum við ekki algerlega hamingjusöm?" þegir Loftur andartak og svarar svo: „Jú, það erum við.“ (48) Textinn sem á eftir fer hefur yfir sér blæ trúarjátningar: Eg var sjúkur en þú hefur gert mig heilbrigðan — ég var metnaðargjarn en þú hefur gert mig auðmjúkan. I lok atriðisins biður Loftur Dísu að ímynda sér helgan mann sem getur „losað vesalan syndara við valdagirni og losta, loga reiðinnar og myrkur hatursins . . .“ (49) og svo krýpur hann fyrir Dísu, lýtur henni og hún strýkur honum um hárið eins og móðir barni. Öll sú kynferðislega spenna sem lá að baki fyrsta atriðisins er horfin, enda er Loftur búinn að gera Dísu að dýrlingi, sem ræður yfir náðarmeðölunum sem hann þarfn- ast. Og hann elskar ekki þennan dýrling, öðruvísi en menn elska dýrlinga. Firringin og sambandsleysið milli þeirra kemur svo upp á yfirborðið í lokaþættinum: DISA: Þú leikur mig eins og barn. Ég er ekki neitt barn lengur. (Sest). LOFTUR: Eg get ekki sagt þér, hvað það er, sem veldur mér hugarangri, vegna þess, að það er best fyrir þig, að þú fáir ekki að vita það. Þekking og sakleysi geta ekki farið saman. (67) I lokaþættinum er Loftur algerlega klofinn gagnvart Dísu. Hann lýgur að henni, hverfur til fantasíunnar sem nú er orðin hreinn veruleikaflótti og um leið reynir hann að segja henni sannleikann um sig, hann hrópar á 291
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.