Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 48

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 48
Tímarit Máls og menningar Þá er þess að geta að þeir draumar sem við segjum hvert öðru þegar við vöknum, draumarnir sem við trúum dagbókinni fyrir eða sjúklingar segja sálgreininum sínum, eru ekki bein tjáning kynferðislegra óska. Þeir hafa farið í gegnum langt ferli, tekið breytingum og afbakast svo að þeir eru nær óþekkjaniegir, og síðan er það verkefni sálgreinisins að endurvekja hið upprunalega samhengi. Freud greinir á milli hins augljósa efnis draumsins og dulinna draum- hugsana, og afbökunina skýrir hann sem afleiðingu af „draumvörslunni“. Hin dulda ósk þolir nefnilega ekki dagsljósið umbúðalaust, því hún er á einn eða annan hátt í mótsögn við viðtekið álit og venjur samfélagsins. Hún er andstæð siðferðiskennd okkar og þótt vitundin sofi þá er draum- varslan á verði og hindrar hina ómeðvituðu ósk í að komast upp á yfir- borðið; samfélaginu og siðmenningunni gæti stafað ógn af henni. I Draumtúlkun eru talin upp öll meðul og klækir sem draumvarslan beitir áður en óskin nær að sleppa í gegn. Hér gefst aðeins tækifæri til að drepa á nokkur einfölduð dæmi sem síðan verða skýrð út frá Draumleik Strind- bergs: — Einn þáttur í hinum duldu draumhugsunum getur runnið saman við annan þátt, það kallar Freud tilfxrslu. — Einn þáttur getur tekið á sig andstæða mynd, það kallar Freud um- snúning. — Margir þættir geta sameinast í einn, það nefnir Freud samþjöppun. I Draumtúlkun segir Freud til dæmis frá konu sem var sjúklingur hjá honum. Hún segir frá draumi þar sem fram kemur persóna sem lítur út eins og A, talar eins og B, klæðir sig líkt og C, en tekur þátt í aðstæðum sem sjúklingurinn hafði upplifað með D. Þegar Freud grennslast eftir við hvern hún haldi að þessi persónublanda eigi í draumnum, þá er hún öld- ungis viss um að hún geti ekki átt við aðra en E. Persónublandan er niður- staða af tilfærslu, samþjöppun og umsnúningi. Skoðum nú Draumleik Strindbergs. I afar stuttu máli segir í leikritinu frá dóttur guðsins Indra, sem stígur niður til jarðar til að athuga með eigin augum hvernig mannfólkinu líður. Niðurstaða hennar er líka stefið í leikritinu: „Mikið eiga mennirnir bágt“ og „Móðurmál mannsins eru kveinstafir“. Þrjár aðrar persónur koma mikið við sögu: Málfærslumaður- inn sem þykist þekkja mun á réttu og röngu — hann giftist dóttur Indra til að deila með henni þekkingu sinni; liðsforinginn sem er alltaf að leita að æskuástinni sinni; og skáldið sem spyr dótturina um guðlegt innsæi hennar. Margar aðrar persónur koma fram í verkinu en það er erfitt að henda reiður á þeim vegna þess að þær renna saman. klofna, breytast í aðrar persónur, leysast upp. Eins og nafnið bendir til er leikritið draum- 310
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.