Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 52

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 52
Ragnhildur Richter „Ljóðafugl lítinn jeg geymi — hann langar að fljúga“ Athugun á stöðu skáldkonu gagnvart bókmenntahefð. Hulda (dulnefni Unnar Benediktsdóttur Bjarklind (1881-1946)) varð fyrst íslenskra skáldkvenna til að njóta almennrar viðurkenningar fyrir ljóða- gerð sína. Fyrsta ljóðabók hennar, Kvxbi, kom út 1909. Ljóðabækur hennar urðu alls sjö en auk þess liggur eftir hana mikið efni í lausu máli, skáldsögur, ritgerðir o.fl. Fullyrða má að Hulda hafi haft miklu betri tækifæri til að fylgjast með nýjungum í bókmenntum en almennt var um íslensk samtímaskáld henn- ar, hvað þá um íslenskar aldamótakonur. Faðir hennar, Benedikt Jónsson, var einn af stofnendum bókafélagsins „Ofeigur í Skörðum og félagar“, sem þingeyskir bændur stofnuðu á níunda áratugi 19. aldar, og má telja víst að í uppvextinum hafi Hulda haft aðgang að ótrúlega fjölbreyttum kosti erlendra bókmennta í eigu félagsins.1 Því má fullyrða að hún hafi komist í náin kynni við evrópska bókmenntahefð 19. aldar og rætur hennar því alþjóðlegri heldur en almennt gerðist um samtímaskáld hennar hér á landi, en hún var einnig vel heima í íslenskri ljóðahefð, s.s. eddukvæðum og þjóðkvæðum, eins og ljóð hennar bera með sér. Skáld þurfa alltaf að takast á við ríkjandi bókmenntahefð og síðan, meðvitað eða ómeðvitað, annað hvort að hafna henni eða játast. Þetta á e.t.v. frekar við um ljóðskáld en sagnaskáld, þar sem ljóð sækja oft efnivið sinn til bókmenntalegrar reynslu og hefðarinnar en efniviður sagna er frekar fenginn úr raunveruleikanum og félagslegri reynslu. Harold Bloom setti fram þá kenningu2 að hreyfiafl bókmenntasögunnar sé það sem hann kallar „ótta skáldsins við áhrif“, þ.e. ótta skáldsins við að skapa ekki verk sín sjálft heldur hafi verk fyrirrennaranna (hefðin) meiri áhrif á hvað er skrifað heldur en vitund skáldsins. Bloom telur þetta samband skálds við fyrirrennara sína vera sama eðlis og samband sonar og föður, eins og Freud skilgreindi það samband. Þannig útskýrir Bloom að 314
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.