Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 61

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 61
„Ljóðafugl lítinn ég geymi ..." gegnum brimið sný jeg.“ Leið konunnar frá hefðinni til eigin tjáningar er torveld því: “vogur er kaldur og báran byrst;/ þar bliknar oft neisti fundinn.“ Sá sem þarf að fara með eldinn langa leið frá hefðinni í ein- angrun sína á alltaf á hættu að eldurinn slokkni á leiðinni. I ljóðinu Hlaðguður (1926, bls. 71) talar móðir sem situr yfir vöggu dóttur sinnar. Hún sér sig í sporum drottningarinnar, móður Mjallhvítar, þar sem hún situr við gluggann og horfir út um leið og hún saumar út: Nú tekur þá drífan að falla á fold. Hve fönnin skín ljósbjört við mána. Jeg sauma við gluggann — til blóðs til blóðs. Hve biksvört er klöppin við lána. Jeg þarf ekki að óska jeg eigi mjer nift, sem ebenvið, blóðið og snæinn; í vöggunni hjá mjer það óskabarn er, — ein ungrós við dunandi sæinn. Eini munurinn á hlutskipti móðurinnar í ljóðinu og drottningar ævin- týrsins er sá að kona ljóðsins hefur þegar fætt dótturina sem drottningin óskar sér. Móðirin finnur fyrir innilokun sinni og harmar hana: Jeg veit um land — ó, jeg veit um land, sem vafið er þyrnum og blómum. Jeg finn, þegar hafbáran fellur við sand, hve fjær jeg er rósum og hljómum. Það land sem hún veit um og þráir er greinilega land frelsis og skáldskapar. Jafnframt því að harma innilokun sína í móðurhlutverkinu veit konan að henni var ætlað annað hlutskipti í landi frelsisins: Jeg veit, að jeg átti að vinna úr mold þá vætt, er und trjárótum sefur, og smíða úr gullinu gripi og skart, það glampar — og veit ei hvað tefur. Hún er þess fullviss að henni hafi verið ætlað annað og ókvenlegra hlutskipti í lífinu heldur en raun hefur orðið á, henni var ætlað dæmigert karlhetjuhlutverk, þ.e.a.s. að vinna stóra sigra úti í hinum stóra heimi og uppskera ríkuleg laun. Launin (gullið) átti hún svo að nota til listrænnar sköpunar. Konan finnur til sektarkenndar um leið og hún viðurkennir hversu fjarlægar óskir hennar eru veruleikanum: „En sagði jeg fjær? 323
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.